Thursday, March 6, 2014

Megagóður morgunverðargrautur

Ég er svo meeeeegasátt þar sem mér tókst að koma ofan í mig graut með chia fræjum og hann var ekki slepjulegur líkt og hann er þegar eingöngu chia fræ eru notuð. Ég hef prófað að setja eingöngu jarðaber í hann og það var rosa gott, svo hef ég prófað bara mangó en mér fannst það mun síðra og svo nú síðast setti ég jarðaber og banana og það var sko jummí!




Hráefni
1/4 bolli haframjöl
2 msk chia fræ
1 msk hampfræ
4 stk jarðaber
1/2 lítill banani

Aðferð
1. Kvöldið áður en þú borðar grautinn gerir þú hann tilbúinn.
2. Blandaðu saman höfrunum, chia fræjunum og hampfræjunum.
3. Helltu möndlumjólkinni yfir þannig að hún fljóti aðeins yfir. Hrærðu í þessu.
4. Settu inn í ísskáp.
5. Um morguninn: Taktu úr ísskápnum og berðu fram með niðurskorðnum jarðaberjum og banana.

Ég lofa ykkur því að þetta er fáránlega gott :) 

Heimatilbúin möndlumjólk

Það er víst frekar mikill sykur í keyptri möndlumjólk (það sem flokkast kannski samt sem "hollur" sykur) þannig að ég hef verið núna að gera mína eigin. Þessi keypta er samt náttúrlega fáránlega góð.

Ég hef prófað nokkrar uppskriftir af heimatilbúinni möndlumjólk en þessi finnst mér by far lang best.



Hráefni
100 ml möndlur með hýði
400 ml vatn

Aðferð
1. Möndlurnar eru lagðar í bleyti ekki styttra en hálfan sólarhring (ef þú vilt hana sem besta).
2. Sigtaðu möndlurnar frá vatninu og settu í blandara.
3. Bættu við 400 ml. af vatni og blandaðu í ca. 3- 5 mínútúr.
4. Sigtaðu blönduna með því að nota nælonsokk, sumir vilja reyndar mjólkina með hratinu ef þeir nota þetta í boozt. Ekki henda hratinu, geymdu það í bakstur inn í ísskáp.
5. Helltu mjólkinni í glerflösku eða glerkrukku.

Thursday, February 20, 2014

Febrúar!

Ég er búin að vera agalega léleg að tjá mig hér síðasta mánuðinn ... ástæðan = að hluta til að ég er búin að vera of upptekin í eldhúsinu ... Ég kíkti yfir allar myndir í febrúar og sagan í febrúar er meira og minna matur!

Engum kjúklingaafgöngum hent. Öll bein sett í pott og búinn til kjúklingakraftur frá grunni sem ég notaði svo í dýrindis súpur.


Prófaði Chia graut í fyrsta skipti og mér fannst ÓGEÐ. Setti bara kanil út í hann en næst mun ég prófa hann með berjum, hlýtur að vera betri þannig haha. Sítrónusafinn góði ávallt við hendi.



Freistingarnar voru á hverju strái á meðan ég japplaði á grænmeti og eggi.



Ég masteraði low carb brauð og hér borðaði ég það með kjúklingabringu, hvítlauksolíu, ruccola og tómat.



... brauðið góða ...



... hér bjó ég til eins konar pizzu úr því með hakki og grænmeti ...



Nesti, nesti, nesti ...





Dýrindis hummus með góða brauðinu



Kaleo kom að spila fyrir okkur



María var rosa ánægð með það



Ég líka! :) 



Dæmdi á nokkrum mótum ... kom með mitt eigið snarl :) Hnetur urðu fyrir valinu.



Dýrindis gulrótarsafi með sítrónu og engifer



Ekkert að þessum brunch!



Kjúklingavængir og "franskar"



Snilldar námskeið sem ég fór á með henni Maríu Ellingsen



Fiskur veltur upp úr möndlumjöli og karrý



Low carb pizzauppskrift sem ég bjó til (nota bene er ekki á low carb)



Dansaði í hádeginu í Hörpunni á þessum dýrindisdegi





Leyfði þessum snillingum að púla mikið!







Eyddi valentínusarkvöldinu með henni Örnu Björg minni og henti henni með mér í fimleikasalinn daginn eftir og enduðum við á sundspretti... nema það heitir víst réttu nafni "pottachill" :) 









Brunch enn og aftur :) 



Hádegismatur ...




Spennandi líf þessa dagana eða þannig haha :) 

Í kvöld ætla ég að styrkja gott málefni og skemmta mér í leiðinni en ég ætla á tónleikana sem masters nemar í HÍ standa fyrir en þeir heita "Öll í einn hring" og eru til styrkar Barnaspítala Hringsins. Enn eru til miðar og mæli ég með því að allir kaupi sér eitt stykki á meðan þeir eru enn til. Miðarnir eru seldir hér.

Þar til seinna!

Kveðja,
Eva matur

Thursday, February 13, 2014

Kolvetnasnauð pizza með tómat, kjúkling og klettasalati

Ó lord - Ó lord!

Ég var við það að fara gefast upp í dag, þar sem að ég var greinilega orðin of svöng ... 10 km útihlaup hjálpaði þó einstaklega vel að drepa niður þessa "hætta" löngun. 

EN ég ákvað, nú skal ég prófa að gera pizzu sem ég má borða og er góð og viti menn - það tókst!



Hráefni í pizzabotn
1 egg
100 ml. heitt vatn
1 msk extra virgin ólifíuolía
1 msk husk
4 msk golden flax seed meal
4 msk möndlumjöl
Smá sjávarsalt

Annað hráefni sem ég notaði
Elduð kjúklingabringa
Heimatilbúin pizzasósa (t.d. ein góð í Grænum kosti Hagkaupa)
1/4 laukur
2 hvítlauksrif
1 tómatur
Klettasalat
Heitt pizzakrydd
Chilipipar
Extra virgin ólifíuolía

Aðferð
1. Hitið ofnin í 200°C undir og yfir hita. 
2. Egginu, vatninu og olíunni er blandað saman með þeytara.
3. Þurrefnunum bætt við. Þetta er frekar blautt deig.
4. Setjið bökunarpappír á plötu og penslið olíunni á hann. Malið smá salti yfir olíuna.
5. Dreifið úr deiginu á plötuna, þetta er smá maus þar sem að deigið er blautt, best að nota sleikju. Penslið olíu yfir deigið og malið smá salt yfir.
6. Setjið inn í ofn í 30 mínútur.
7. Saxið laukinn og hvítlaukinn niður. Skerið kjúklinginn og tómatinn niður í sneiðar á meðan botninn bakast.
8. Takið botninn út. Setjið allt áleggið á (nema klettasalatið) og kryddið eftir smekk. Skvettið smá olíu yfir áleggið.
9. Setjið aftur inn í ofn í 15 mínútur.
10. Takið úr ofninum og dreifið klettasalati yfir.

Einstaklega gott að kreista svo sítrónu út í klakavatn og drekka með :) 

Tuesday, February 11, 2014

Heitir kjúklingavængir ásamt hvítlauksfrönskum

Fyrst ég er byrjuð þá er ágætt að halda áfram. Það þarf ekkert að vera leiðinlegt og hrein píning að vera á svona takmörkuðu mataræði líkt og ég er á núna. Það þarf bara að passa upp á að maturinn sé ekki vondur og tilbreytingarlaus.

Í gær skellti ég í kjúklingavængi með "frönskum" og "ó mæ god" hvað þetta var gott.



Hráefni
3 kjúklingavængir
1/2 bökunarkartafla
Ca. teskeið af best á kjúllann
Ca. hnífsoddur af chili pipar
Hvítlauksolía
Extra virgin olive oil
Sjávarsalt
Í þessu tilfelli - grænkál
Álpappír

Aðferð
1. Hitið ofninn í 200°C.
2. Klippið kjúklingavængina þannig að úr verða 6 bitar.
3. Setjið kjúklingavængina í skál hellið ca. matskeið af extra virgin olíu yfir vængina og setjið best á kjúllann og chili í blönduna. Hrærið vel saman.
4. Setjið álpappír á plötu og raðið kjúklingavængjunum á plötuna.
5. Skerið bökunarkartöfluna niður í ræmur og setjið í skál. Hellið dassi af hvítlauksolíu yfir og saltið.
6. Raðið kartöflunum líka á álpappírinn en bara í smá fjarlægð frá kjúklinginum svo kjúklingurinn smiti ekki kartöflurnar.
7. Setjið inn í miðjan ofn í ca. 30 mín eða þar til að þið sjáið að kjúklingurinn er orðinn tilbúinn og kartöflunar líka.

Kúrbíts bolognese

UPDATE: Enn betra með því að nota gulrætur í staðinn fyrir kúrbít. Þá eru gulræturnar bara skrældar niður í strimla. Fékk mér afganginn í hádeginu af sósunni ásamt tveim stórum gulrótum, snilldin ein!

Það er orðið aðeins of langt síðan ég póstaði einhverju hér inn. Ástæðan er einfaldlega "fráhvörf í matarræði" sem hefur gert mig þreytta og pirraða sem og að ég hef lítið annað gert en að standa inn í eldhúsi að búa til mat. Það tekur ekkert lítinn tíma að gera allt frá grunni og reyna búa til eitthvað gómsætt sem ég má borða.

Orkan virðist loksins vera að læðast inn núna með nýju matarræði og því er tilvalið að deila einni djúsí uppskrift sem ég gerði í kvöld. Vonandi verða þær fleiri góðar og hollar sem ég get deilt með ykkur en ég vil samt að þær séu virkilega góðar til að ég deili þeim, ekki bara svona lala.

Í kvöld gerði ég mér s.s. kúrbíts bolognese sem var bara rosalega gott :)


Hráefni fyrir tvo
1 msk extra virgin olive oil
100 gr. nautahakk
1/4 laukur
2 hvítlauksrif
1 gulrót
1,5 sellerí stöngull
5 tómatar
2 msk tómat púrra frá Himneskri Hollustu
200 ml. vatn
2 tsk gerlaus grænmetiskraftur
1 tsk þurkkuð basilika
Hnífsoddur af chili pipar
Sjávarsalt og svartur pipar

1 kúrbítur 
(ég borðaði þann skammt ein, spurning um að auka þarna við ef gert er fyrir tvo)

Aðferð
1. Hitið olíu á pönnu (miðlungs hiti) og saxið laukinn niður á meðan olían hitnar.
2. Setjið laukinn á pönnuna og rífið svo niður hvítlauksrifin á pönnuna.
3. Skerið gulrótina og sellerí stöngulinn niður í litla bita og bætið við á pönnuna þegar laukurinn er orðinn mjúkur. Steikið í 4 mín.
4. Bætið nautahakkinu við og steikið þar til hakkið er ekki lengur rautt á litið.
5. Skerið tómatana niður í bita og bætið við á pönnuna.
6. Bætið við tómatpúrrunni, vatninu, kraftinum og kryddunum. Leyfið þessu að malla í ca. klst. - því lengur því betra.
7. Á meðan sósan mallar, skerið þá endana af kúrbítnum og afhýðið. Notið svo grænmetisskera til að rífa niður kúrbítinn í strimla alveg þar til þið eruð komin að fræjunum.
8. Setjið strimlana í skál og saltið og blandið vel saman.
9. Setjið strimlana á þurran klút og annan yfir og pressið á. Með þessu móti fer mest af vatninu úr kúrbítnum. Best er að leyfa þessu að vera í sem lengstan tíma ef þolinmæði er fyrir hendi. Hægt að leggja t.d. bók ofan á. Talað er um klukkutíma en ég hafði þessa þolinmæði ekki :) 

Ég hitaði svo aðeins sellerí strimlana á pönnu en ég held að það sé alveg óþarfi þar sem að þeir mýktust kannski of mikið við það, en samt sem áður rosa gott.

Njótið!



Sunday, February 2, 2014

Að standa við markmið sín...

Þá er kominn einn mánuður síðan ég byrjaði á fyrsta verkefni mínu "Að hugsa um sál og líkama" sem lesa má um hér.

Ég ákvað strax í upphafi árs að þetta yrði mitt fyrsta verkefni á þessu ári og að ég myndi halda því áfram um alla tíð.



Næsta verkefni sem ég ætla að taka mér fyrir hendur úr bókinni "The How of Happiness" er:

- Commiting to goals - 

... eða að standa við markmið mín.



Þetta verkefni mitt tengist að mörgu leiti verkefninu að hugsa um sál og líkama. Mitt fyrsta markmið er að fylgja prógraminu í bókinni "Betri næring - betra líf" eftir Kolrúnu Björnsdóttur grasalækni og er fyrsti dagur prógrammsins á morgun. Það fyndna er að þetta er í fyrsta skiptið sem ég er að taka eitthvað svona prógram og það er ekki út af því að mig langar svo mikið til að grennast heldur er það út af því að mig langar til að verða fullkomlega heilbrigð, laus við alla sjúkdóma sem ég veit að er hægt að halda niðri með góðu matarræði. Ég er vön að hugsa alltof mikið um það sem ég má ekki borða þegar ég prófa eitthvað svona, en í þetta skiptið ætla ég að einbeita mér og hugsa um allt það sem ég má borða. Með því ætti verkefnið að vera mun auðveldara.



Markmiðin mín hafa líka verið hengd upp á vegg á 101 listanum mínum. Ég er ennþá bara komin með 70 atriði á listann og vantar því 31 markmið til viðbótar. Ég er ekki frá því að það ýti undir markmiðin að hafa listann hangandi á veggnum svona ljóslifandi.



Sumir gera Óskaspjald þegar þau taka þetta verkefni fyrir hendur. Óskaspjald er spjald þar sem þú límir ýmsa spennandi hluti á sem veitir þér innblástur. Hér má lesa skemmtilega færslu um óskaspjald.

Lyubomisrsky segir í bókinni:
“Committed goal pursuit is different from the other eleven happiness activities that I describe in this book.  The reason is that no matter what our levels of happiness and fulfillment, all of us have some kinds of goals.  Furthermore, our goals vary from one person to another and across time.”

Þegar við setjum okkur markmið þurfum við samt að huga að því að þetta séu okkar markmið en ekki markmið sem samfélagið segir að við eigum að ná. Markmiðin þurfa því að vera virkilega einlæg, hvað langar þig virkilega að gera og afreka í lífinu? Hvaða markmið gætu gefið þér meiri hamingju?



Gott er að nota aðferðir Kotters í breytingastjórnun þegar þú ákveður að færa markmiðin inn í líf þitt svo þau gangi upp :) 


Ji hvað ég er spennt fyrir febrúar mánuði! :)

Klúbb burrito

Ég var að reyna klára hráefni úr ísskápnum mínum þar sem að á morgun tekur nýr lífsstíll við. Eins og oft áður þá verður oft til mikið gúmmilaði þegar maður notar það sem til er og setur það einhvern veginn saman. Ég kýs að kalla þessa uppskrift "klúbb" burrito og miðast uppskriftin við einn skammt.



Hráefni
1 heilhveiti tortilla
2 kalkúnaálegg
2 beikonsneiðar
Sýrður rjómi
Salsa sósa
Feta ostur
Kál
Rauð paprika
Gúrka

Aðferð
1. Setjið fetaost í línu á 3/4 hluta kökunnar og látið kökuna undir grillið á ofninum þar til hún osturinn er smá bráðinn.
2. Steikið beikonið á pönnu þar til það er orðið stökkt. Slökkvið á pönnunni og hitið kalkúnaáleggið á pönnunni á hvorri hlið í smá stund (í beikonolíunni).
3. Setjið beikonið og kalkúnaáleggið ofan á fetaostinn og líka á 3/4 hluta kökunnar.
4. Setjið svo sýrðan rjóma, salsa sósu og grænmeti á sama hátt í kökuna og brettið upp á 1/4 hlutann sem ekkert var á og brettið svo upp á sitt hvora hliðina. Með þessu móti lekur ekkert úr kökunni þegar þið borðið hana.

Þetta minnti mig á einhvers konar Hlölla bát. Þessi uppskrift er ekki beint holl en samt hollara en margar samlokur þannig að ég hendi þessu bara undir heilsurétt! ;) 

Bon appetit! :) 

Tuesday, January 28, 2014

Góður "læra"lagalisti

Ég mæli með þessum lagalista hér ef þið eruð eins og ég, þ.e. með athyglisbrest þegar þið eruð að reyna læra. Þessi lagalisti kom mér í gegnum prófin í desember og er búin að hjálpa mér að ná einbeitningu í kvöld við lesturinn. Hann er líka fullkominn til hugleiðslu.


Getið líka smellt á þennan link hér: 

Sunday, January 26, 2014

Sizzling grilled fajita!

Uppskrift fyrir 2







Hráefni
2 kjúklingabringur
2 heilhveiti tortillur
1 lítil rauð paprika eða 1/2 stór
1 venjulegur laukur
Creola krydd
Gróft salt
Extra virgin olive oil
Cayenne pipar
Sýrður rjómi
Salsa sósa
Ostur
Kál

Aðferð
1. Skerið laukinn í tvennt og svo niður í sneiðar og setjið í skál.
2. Skerið paprikuna í sneiðar og setjið með ofan í skálina.
3. Setjið olíu, gróft salt og cayenne pipar í skálina eftir smekk og hrærið í blöndunni.
4. Skerið kjúklingabringuna í sneiðar og kryddið sitthvora hliðina með salti og creola kryddi.
5. Kveikið á grillinu og pennslið grillið með olíu þar sem þið munið grilla kjúklinginn.
6. Setjið blönduna í skálinni ofan í grill skál eða á grillpönnu. Eflaust alveg eins gott ef sett er á venjulega pönnu. Grillið eða steikið þar til ykkur finnst það vera klárt.
7. Dreifið kjúklinginum á grillið og grillið báðum megin þar til kjúklingurinn er hvítur í gegn.
8. Takið grænmetið og kjúklinginn af grillinu og slökkvið setjið tortillurnar á grillið. Hitið í örlitla stund sitt hvorum megin.
9. Setjið rifinn ost, kál, sýrðan rjóma og salsa sósu í skálar.
10. Gott er t.d. að smyrja sýrðum rjóma fyrst á kökuna, setja svo kál, kjúkling, papriku og lauk blönduna, salsa sósu og ost og rúlla upp.

Enjoy! ;) 

Thursday, January 23, 2014

Leiðin að framtakssemi

Ég þurfti ... já ég þurfti ... að lesa rannsóknir áðan fyrir skólann. Ástæðan fyrir því að ég segi "þurfti" er sú að ég hef því miður ekki gaman af því að lesa rannsóknir um eitthvað sem ég hef ekki áhuga á. Þessar rannsóknir fjalla yfirleitt ekki um eitthvað sem tengist náminu mínu endilega þar sem þetta er áfangi sem ég er að taka í hvernig eigi að framkvæma rannsóknir o.s.frv. Mér til mikillrar ánægju var þó ein rannsóknin sem vakti áhuga minn en samkvæmt henni leiðir hamingja til meiri framtakssemi.

Þetta "meikar" að sjálfsögðu "sens". Ef manni líður illa þá verður manni akkurat ekkert úr verki og einbeitningin fer. Ef manni líður vel og er hamingjusamur þá eru öll verkefni miklu yfirstíganlegri og skemmtilegri að framkvæma þar sem maður er jákvæður og væntanlega fullkomlega heilsuhraustur bæði andlega og líkamlega.



Hér má finna góða grein um efnið.

Fyrir þá sem ekki nenna að lesa greinina þá fjallar höfundurinn um það að fólk sem nýtur þess sem það gerir er miklu framtakssamari en þeir sem hafa ekki ástríðu fyrir vinnunni sinni. Dæmi um þetta er þegar þér finnst þú einungis hafa unnið í einhverju verkefni í nokkrar mínútur en þegar þú lítur á klukkuna þá ertu búin að vera niðursokkinn í verkefninu í marga klukkustundir.

Þetta minnir mig nú svolítið á þegar ég lærði lögfræði á Bifröst og var stödd í skattaréttarprófi. Þetta var verklegt próf, ekki munnlegt, sem þýðir það að við vorum að reikna skatta í excel skjali. Nema það að ég hef listrænt eðli í mér og finnst fátt jafn gaman og að gera Excel skjal fallegt. Hvað gerðist í þessu prófi - jú próftíminn rann út án þess að ég fattaði það þar sem ég var að skreyta einn hluta af verkefninu sem gerði það að verkum að ég náði ekki að klára hina hlutana - úppz. Ég hefði mátt segja sjálfri mér það þarna að lögfræði var kannski ekki alveg málið fyrir mig, en sem betur fer var afar hreinskilið fólk í lífi mínu þegar ég var á leiðinni í masters nám í lögfræði, sem greinilega þekkti mig og mína kosti betur en ég sjálf.

Ef maður hefur ekki gaman af því sem maður er að gera er maður betur settur annarsstaðar. Ég hlustaði á gott viðtal við hann Jack Welch þar sem hann fjallar um "The Welch Way". Hann flokkar starfsfólkið sitt upp í þrjá flokka:

A fólkið (toppurinn - 20% af starfsfólkinu)
B fólkið (miðjan - 70% af starfsfólkinu)
C fólkið (botninn - 10% af starfsfólkinu)

Hann segir að C fólkið sé það fólk sem á að losa sig við, það hefur enga ánægju af starfinu sínu, það er óhamingjusamt í starfi og mun aldrei verða ánægt. Það besta sem þú gerir fyrir fyrirtækið og fólkið sjálft er að láta það fara. Það mun hugsanlega blómstra annarsstaðar!

Ég er sammála honum, ég hef lært það í gegnum tíðina að ef fólk er óánægt og neikvætt í starfi þá er þetta ekki rétta starfið fyrir fólk og það mun aldrei sýna góða frammistöðu. Þarna get ég tekið gott dæmi með sjálfa mig. Ég hélt að ég væri sú týpa sem gæti unnið öll störf og alltaf verið sátt og ánægð nema að það reyndist ekki vera rétt. Ég ákvað að taka við starfi sem umsjónarkennari í 6. og 7. bekk og stærðfræðikennari í 4. og 5. bekk. Ég hef sjaldan eða aldrei verið jafn þreytt á ævinni. Þó vinnutíminn var styttri en því sem ég hef vanist þá þurfti ég þann tíma sem eftir var til að taka smá kríu eftir vinnu. Þetta starf gerði mig svo þreytta í einkalífinu líka að ég gerði fátt annað en að sofa. Eftir þessa reynslu mína mun ég aldrei fara aftur í starf sem ég veit að ég mun ekki vera sátt í. Eftir þetta bar ég líka endalausa virðingu fyrir kennurum - þetta er ekki auðvelt starf! 

Líkt og kom fram í inngangi greinarinnar þá finnst mér ekki gaman að lesa rannsóknir nema þær fjalli um eitthvað sem mér finnst áhugavert. Hvað gerist þegar ég hef ekki áhugann - ég dett út - les margar blaðsíður og vakna við það að ég veit ekkert hvað ég er búin að vera lesa = tíminn fór gjörsamlega í vaskinn og framleiðnin var engin.

Jæja þetta er orðið gott - munum bara hamingja = framtakssemi! :)

Tuesday, January 21, 2014

Krafturinn í möndluolíunni

Ég var einu sinni algjörlega "húkt" á þættinum Doctors ... gjörsamlega elskaði að hafa lítið annað að gera en að horfa á morgundagskrá stöðvar 2 með kaffibolla í höndinni og enn í náttfötunum. Nú er tíðin önnur og í einu skiptin sem þetta gerist í dag þá er ég í sumarfríi og upp í bústað og þokkalega í náttfötunum með kaffibollann í höndinni. Ég er ekki frá því að ég sé að missa af heilmiklu þar sem að það er alveg hreint ótrúlegt hvað það eru margir fróðleiksmolar í þessum þáttum! :) 

En allavega, eitt af því sem vakti áhuga minn í þessum þáttum var þegar þeir töluðu um möndluolíu. Í þeim þætti var talað um að nota megi möndluolíuna undir augun til að fjarlægja bauga. Ég var ekki lengi að hlaupa út í Jurtaapótek og kaupa möndluolíu.



Ég nota hana í dag ekki einungis undir augun þegar mér finnst ég vera eitthvað þreytuleg heldur nota ég hana í staðinn fyrir augnkrem! Nú heyri ég alla snyrtifræðinga og förðunarfræðinga ópa í kór yfir því hversu heimskulegt það er en mér er alveg sama, mér finnst þetta virka enda ekki enn komin með neinar hrukkur í kringum augun. Ég trúi því þó að þar spili genin eitthvað inn í en ég get samt ekki ímyndað mér annað en að þetta feit olía smyrji vel ofan í fínu línurnar hjá augunum. Ég nota han líka á þurra bletti í andlitinu og á hendurnar á kvöldin í stað handáburðar. Eftir að ég fór að nota hana aftur finnst mér eins og naglaböndin séu ekki jafn slitin og neglurnar sterkari.

Ég google-aði aðeins um möndluolíuna til að athuga hvort eitthvað af þessu "meikar sens" og komst að eftirfarandi:

- Hún er mjög mýkjandi og nærir vel húðina.
- Hún inniheldur A, E og D vítamín og er því mjög góð fyrir húðina.
- Hún hefur róandi áhrif og því góð á exem og ofnæmi.
- Góð sem nuddolía.
- Hún hefur lýsandi áhrif á þann hátt að hún lýsir upp dökka bletti í húðinni, líkt og ójafnt litarhaft og bauga.
- Hún dregur úr hrukkum.
- Hægt að nota á húð sem hefur farið illa úr bruna (væntanlega vegna róandi áhrifa og að hún gefur góðan raka).
- Hægt er að nota hana í skrúbba, á bólur, sem andlitskrem, sem augnkrem (yes!), fyrir húðslit og til að hreinsa af förðun.
- Það er líka hægt að nota hana í hár þar sem hún stuðlar að hárvexti, styrkir hárið og mýkir enda. Hægt er að nudda henni í hársvörðin ef flösuvandamál er til staðar og dregur líka þannig úr hárlosi.

Þar hafið þið það! Mæli með að þið kaupið ykkur eitt stykki, kostar ekki nema einhverjar 1.300 eða 1.400 kr. :)