Thursday, January 16, 2014

Breytingastjórnun í einkalífinu

Mér finnst svo gaman í skólanum - ég er lokins búin að finna mér nám sem ég virkilega hef áhuga á. Eflaust er helling af öðru námi sem ég hef áhuga á en þetta er algjörlega málið núna. Það sem er skemmtilegast við námið er að það er ekki bara að gagnast mér í vinnu heldur líka í einkalífinu.

Ég fór í tíma í gær í breytingastjórnun og á meðan ég hlustaði á kennarann tala um 8 skref Kotters að breytingum var ég alltaf með hugann við vinnuna og hvernig ég gæti nýtt mér þessi skref þar... Þar til ég kom heim um kvöldið þá fattaði ég það að auðvitað þyrfti maður að nota slíka aðferðarfræði líka þegar maður vinnur að breytingum í lífi sínu.

Í fyrirtæki er ekki nóg að segja bara "Hey gerum þessa breytingu" og svo bara á það að gerast! Líkt og þegar maður setur sér eitthvað markmið, segjum til dæmis markmiðið að vakna kl. 6 á morgnanna, er þá virkilega nóg að stilla bara klukkuna klukkan 6 og vonast til þess að maður ýti ekki á snooze takkann í það skiptið? Kannski eru margir sem eru svo harðir af sér, en ég er ekki ein af þeim, engan veginn. Ég þarf augljóslega að nota breytingastjórnun inn í mitt líf þegar ég set mér markmið.

Ég fór á góðan fyrirlestur með Vilborgu Örnu um daginn hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum. Þegar ég hugsa núna tilbaka, þá átta ég mig á því að hún ákvað ekki bara "jæja, ég ætla að skella mér á Suðurpólinn í nóvember" og fór og keypti sér miða. Heldur setti hún upp áætlun um það hvernig hún ætti að ná þessu markmiði og tók þetta skref fyrir skref þar til hún loksins komst á leiðarenda.

Í gær fór ég til læknis og labbaði þaðan út með enn aðra "sjúkdómsgreininguna" og tilheyrandi lyfseðlum við þessum vandamálum. Jú ég var ánægð að vita að þetta var ekki allt í heilanum á mér en ég nenni ekki einhverri lyfjainntöku og leiðindum. Í gær var ég að spjalla við vin minn og sagði honum frá þessari heimsókn. Hann skoraði á mig að breyta lífsstílnum mínum með tilheyrandi matarræði sem væri skipt í áfanga. Fyrsti mánuðurinn er víst erfiðastur en svo bætist alltaf meira og meira við með hverjum áfanga. Hann hefur áður skorað á mig að fara út í þetta en ég alltaf einhvern vegin hundsað þetta. Hann náði svo að sannfæra mig á endanum þegar hann sagði við mig "ég og kona mín vorum á þessu og Eva ég er að segja þér það við vorum með endlausa orku". Jáááá... orka! Það er eitthvað sem ég þarf inn í líf mitt til að meika 100% vinnu, fimleikaþjálfun, þrjú fög í skólanum sem teljast 18 einingar, æfingar og svo framvegis og svo framvegis. Þannig að endanum sagði ég:

"Challange accapted!"

Jæja það er nú ekki nóg að bara segja það, nú þarf ég að fara út í áætlanir, aðgerðir og halda mig við efnið. Ég mun byrja 1. febrúar.



Samkvæmt líkani Dr. John Kotter eru 8 skref að breytingum.

1. skref - Upplýstu þörfina og búðu til nauðsyn
Í fyrirtæki væri þetta þannig að þú þarft að upplýsa starfsmennina um það af hverju það þarf að breyta einhverjum ákveðnum hlut þannig að þeir trúi því að breytingarnar séu nauðsynlegar.

Ef við útfærum þetta yfir á einkalífið þá þarft ÉG að upplýsa SJÁLFA MIG um það af hverju hlutirnir þurfa að breytast. Ég þarf að horfast í augu við vandamálið og sannfæra sjálfa mig um að þetta sé hlutur sem þarf að breytast.

Ég þarf orku! Ég þarf að losa mig við eða deyfa niður vefjagigt og hennar fylgikvilla og nýjasta nýtt: vélindabakflæði og astma. Það mun ekkert breytast ef ég held áfram á sömu braut, þó ég sé nú yfirleitt frekar holl hvað varðar matarræði og hreyfi mig töluvert, en það er ekki nóg. Því ákvað ég að taka þessari áskorun, ég þarf orkuna og mig langar til að verða verkjalaus. Þetta er nauðsynlegt svo mér muni líða vel í sál og líkama.

2. skref - Búðu til hóp lykilstarfsmanna
Í fyrirtæki virkar þetta þannig að þú færð með þér í hóp lykilstarfsmenn sem hjálpa þér að innleiða þessar breytingar. Þetta fólk er áhrifafólk sem talar við sitt samstarfsfólk um hversu góð t.d. hugmyndin er og hjálpar þér svo að útfæra hugmyndina betur.

Þegar kemur að einkalífinu og þínum breytingum þá geturu í þessu tilviki safnað í kringum þig fólki sem hjálpar þér að ná markmiði þínu og talar þig til þegar þú ert við það að gefast upp. Ekki umgangast fólk sem hefur ekki góð áhrif á þig og reynir að draga úr þér. Safnaðu í kringum þig fólk sem styður þig og peppar þig upp til þess að ná markmiði þínu!

3. skref - Þróaðu framtíðarsýnina
Í fyrirtæki þarf alltaf að horfa til framtíðar þegar breytingar eru gerðar. Hvert stefnir fyrirtækið, hvar viljum við vera í framtíðinni hvað þessar breytingar varðar? Hér þarf að fara í stefnumótunarvinnu.

Í einkalífinu er þetta nákvæmlega sama málið. Hvernig viltu sjá þig að lokum, heilsuhrausta og fullan af orku? Já akkurat. Hvernig ætla ég að ná því markmiði? Jú með því að setja niður stefnumótun að markmiðinu. Það þarf að hugsa út í hvert einasta smáatriði sem gæti komið upp og setja þarf niður gott skipulag.

4. skref - Upplýstu um framtíðina
Í fyrirtæki þarf sá sem stjórnar breytingunum að vera viss um það að flestir starfsmenn skilji sig og samþykki framtíðarsýnina og stefnumótunina.

Í einkalífinu er mjög gott að láta sem flesta vita að því í hverju þú ert að vinna. Ég mun til að mynda upplýsa þá sem eru í kringum mig (og er að því núna) að þetta er það sem ég er að fara út í og af hverju ég er að gera þetta. Með þessu er ég að hindra það að fólk t.d. reyni að selja mér hugmyndina um eitthvað gourmet fæði og drykki.

5. skref - Taktu á andstöðu og gerðu áætlun
Í fyrirtæki þarf að fjarlægja allar hugsanlegar hindranir sem koma í veg fyrir breytingarnar. Það þarf að breyta kerfum og þeim strúktúrum sem ekki styðja þessa framtíðarsýn. Hér þarf að stuðla að smá áhættutöku sem brýtur upp föst norm, ákveðnar hugmyndir og aðgerðir.

Pizzakvöld á föstudögum, vinnudjamm, afmælisboð - þetta eru hindranir. Það þarf kannski ekki alveg að fjarlægja þessar hindranir, bara ekki taka þátt í þeim ósiðum sem þeim fylgja ;) Það er hægt að segja nei, þó að normið segji já... Ef breytingar eiga að gerast, þá þarf að gera hlutina öðruvísi. Fjarlægðu líka fólkið tímabundið sem finnst þetta bara vitleysa í þér og er ekki að hjálpa þér við breytingarnar.

6. skref - Búðu til áfangasigra
Það þarf að passa upp á að fagna öllum áföngum þó þeir séu litlir. Þetta heldur verkefninu lifandi og fólk áttar sig á því að vissum áföngum hefur verið náð. Verðlaunaðu þeim sem standa í verkefninu með þér.

Fyrirtæki gætu t.d. boðið upp á pizzuveizlu þegar einum áfanga er náð og verðlaunað starfsmönnum með einhverju lítilræði við hvern áfanga. Þegar lokaáfangum er náð er t.d. haldið eitt stykki feitt partý!

Í einkalífinu er þetta nákvæmlega eins. Eftir fyrsta áfanga væri t.d. hægt að gefa sjálfum sér nudd. Í næsta áfanga geturu keypt þér eitthvað fallegt. Þegar lokaáfanganum er náð gefuru sjálfum þér einhverja góða gjöf! Ekki væri slæmt að gefa þeim sem stóðu við bakið á þér eitthvað skemmtilegt eða fallegt.

7. skref - Hafðu úthald
Þó áföngunum er náð - ekki loka augunum ef upp kemur ný og betri sýn. Fáðu með þér, þróaðu og efldu starfsmenn sem geta hjálpað þér að klára verkefnið. Vertu opin fyrir nýjum hugmyndum varðandi breytingarnar, upp geta sprottið ný verkefni í kringum það fyrsta og nýtt fólk.

Þegar breytingar eru gerðar í einkalífinu er nauðsynlegt að hafa úthald til þess að klára markmiðin. En þegar þeim áfanga er náð gæti vel verið að upp komi eitthvað nýtt og betra - ekki loka augunum fyrir því.

8. skref - Festu nýbreytnina í sessi
Það er ekki nóg að breyta, það þarf að halda breytingunum inn í lífinu, ekki fara tilbaka í það hvernig hlutirnir voru. Í fyrirtæki þarf að halda starfsfólkinu við efnið og kenna þeim að lifa með breytingunum. Það þarf að búa til nýja hegðun og tengja hana við velgengni fyrirtækisins. Það þarf að þróa aðferðir til að tryggja að breytingarnar skilji áætluðum ávinningi.

Hverjir kannast ekki við það að hafa verið ógeðslega duglegir og náð geðveikum árangri og svo þegar það er búið þá er bara farið aftur í sama farið. Þetta má ekki gerast. Þetta er nýr, betri og breyttari lífsstíll, til hvers að fara tilbaka þegar þessum árangri er náð. Hugsaðu um líkama þinn og sál sem fyrirtæki, aldrei myndi fyrirtæki ákveða allt í einu: "YES, við náðum að koma þessu í gegn og vá hvað okkur gengur vel ... en æjjj hitt var bara svo eitthvað þægilegt og gott, þó okkur hafi gengið illa, hvað um það ... förum frekar bara aftur í gamla farið og aftur í sama tapið!"

Nei, nei - líkami okkar er musteri sálarinnar. Förum vel með hann og festum nýbreytnina í sessi.

- þar til seinna!

No comments: