Ég eldaði mér áðan hinn ágætasta ýsurétt og ákvað að drífa í að setja uppskriftina inn á meðan ég man hana ennþá. Ég er engin fiskimanneskja og ekki mikið í því að útbúa fiskirétti en þar sem ég er að reyna borða næringaríkari mat þá neyddist ég til þess rétt áðan og útkoman var bara ansi fín. Það besta var hversu stuttan tíma það tók að útbúa réttinn. Eins og venjulega var ég bara reyna nota það sem var til í ísskápnum mínum, en ég er á því að þá koma oft bestu uppskriftirnar. Eftirfarandi uppskrift miðast við eina manneskju og því er bara hægt að margfalda hana með þeim fjölda sem eldað er fyrir.
Hráefni
Eitt stykki ýsubiti
1 msk ca. extra virgin olive oil
Gróft salt (ég notaði rock salt sem var "grindað")
2 tómatar
2 hvítlauksgeirar
1/4 af stórri papriku
Lúka af spínati
Lúka af klettasalati
1 egg (notaði brúnegg)
Rifinn mozzarella ostur
Klettasalat til skreytingar
Aðferð
1. Saxið niður hvítlaukinn.
2. Hitið olíuna á hæðsta hita.
3. Skerið tómatana og paprikuna niður í bita.
4. Setjið hvítlaukinn, tómatana og paprikuna á pönnuna.
5. Saltið eftir smekk.
6. Bætið við lúku af spínati og lúku af klettasalati.
7. Þegar þetta er búið að malla í smá stund (ca. 2 mínútur), setjið þá egg í skál og sláið með gaffli og hellið svo út í blönduna.
8. Leyfið blöndunni að malla í ca. 2 - 3 mín.
9. Saltið fiskstykkið báðum megin og setjið það ofan á blönduna. Leyfið stykkinu að standa ofan á blöndunni (á pönnunni) í ca. 2 mín.
10. Snúið stykkinu við og vefjið hliðunum af blöndunni yfir steiktu hliðina. Leyfið þessu að eldast svona í ca. 2 mín.
11. Stráið mozzarellaostinum yfir.
12. Setjið klettasalat á disk.
13. Takið fiskinn af pönnunni og færið yfir á diskinn.
Njótið vel ;)

No comments:
Post a Comment