Wednesday, August 26, 2015

Satay kjúklingasalat

Ég gjörsamlega ELSKA þetta salat, ótrúlega einfalt í matreiðslu og það finnst nákvæmlega öllum þetta geggjað. Ég ætla þó ekki að taka heiðurinn af þessari uppskrift þar sem að ég fékk hana frá Sigrúnu frænku sem fékk hana einhvers staðar. Ef ég google-a þessa uppskrift þá koma ýmsar gerðir af henni fram þannig að ég tel það nokkuð víst að ekki er vitað hvaða snillingur fann upp á henni upphaflega. Anyways, eftirfarandi uppskrift nægir alveg fyrir minnsta kosti 4.



Hráefni
4 stórar kjúklingabringur
1 spínatpoki
1 askja af kirsuberjatómötum
1 rauðlaukur
1 krukka satay sósa
1 krukka feta ostur í kryddolíu
Extra virgin olive oil
Cous cous ... Mér þykir gott að nota venjulegt en í gær var bara til exotic spices þannig að ég notaði það og það virkaði bara alveg eins vel. Mér þykir einstaklega gott að setja smá smjör út í blönduna þegar hún er klár. Ég og Sigrún frænka prófuðum líka einu sinni að nota rautt quinoa (sem er mun hollara en cous cous) og það var líka rosalega gott.

Aðferð
1. Skerið kjúklingabringuna í bita og steikið upp úr olíunni á hæsta hita þar til að kjúklingurinn er steiktur í gegn. Bætið þá satay sósunni við og steikið þar til að sósan er orðin vel þykk og í raun föst við kjúklinginn.
2. Gerið cous cous skv. leiðbeiningum á pakka. Mjög gott að setja smá smjör út í þegar blandan er klár og hræra vel í.
3. Dreifið spínati í skál.
4. Setjið cous cous blönduna yfir spínatið.
5. Næst er kjúklingurinn settur yfir cous cous-ið.
6. Skerið kokteiltómatana í helminga eða í fernt og dreifið yfir.
7. Skerið rauðlaukinn í helminga og því næst í sneiðar og dreifið yfir.
8. Dreifið fetaosti og olíu yfir salatið.

Og þá er salatið klárt, einfaldara gæti þetta ekki verið :) 

No comments: