Jæja þá hef ég klárað verkefni 2 í þessari snilldar bók "Unplug Every Day".
Verkefni var "Organize your closet".
Það er nú ekki langt síðan að ég tók skápinn minn í gegn en ég ákvað að taka þessari áskorun og tók allt út úr skápnum sem er ekki í notkun akkurat núna sem og sumarfötin og tók vetrarfötin upp.
Þessi fatahrúga fór því út úr skápnum í bili.
Og skipulagið í skápnum varð mun betra :)
Ég verð að viðurkenna að þetta var gott verkefni. Núna eru ekki föt sem ég er ekki að nota þessa stundina fyrir mér og því ætti að vera einfaldara að finna sér eitthvað til að fara í. En jafnframt fannt mér þetta verkefni "andlega nærandi" ... Maður dettur í eitthvað zone þegar svona verkefni eru unnin :)
Ég rakst á þessa síðu þar sem farið er í gegnum hvernig á að taka skápinn í gegn. Það er nú eitthvað svipað hjá mér og í þessari grein eða t.d.
1. Notaðu viðeigandi herðatré
Það fer ekkert meira í taugarnar á mér en alls konar herðatré og því eru mín öll alveg eins. Í þessu tilviki er þó verið að tala um herðatré sem hentar hverri flík.
2. Sjáðu skónna þína
Mínir eru allir í hillu þannig að ég sjái þá.
3. Geymdu föt fyrir hverja árstíð
Ég er byrjuð á þessu, sumarfötin fóru í þetta skipti í geymslu og vetrarfötin voru tekin upp. Sorry en sumarið er búið :(
4. Flokkaðu fötin
Ég er með alla kjóla, buxur og pils, jakka og peysujakka, toppa og peysur hengt upp og litaraðað.
5. Litaraðaðu skápnum
Líkt og ég sagði í nr. 4 :)
6. Eyddu út óreiðu
Ég verð að sjá fötin mín og því set ég það sem ég nota ekki þessa stundina eitthvert annað. Nenni ekki óreiðu.
Áhugaverðar pælingar í þessari grein :)




No comments:
Post a Comment