Wednesday, August 12, 2015

Fljótlegur bacon grænmetisnúðluréttur

Best að skella hér inn uppskrift af þessum rétti áður en ég gjörsamlega gleymi hvað ég gerði en hann heppnaðist vel þrátt fyrir að þetta hafi verið svokallaður "afgangs" eða "redda sér" réttur, þar sem mér fannst ekkert vera til í skápunum.



Rétturinn er fyrir tvær manneskjur og eru rúmlegar 400 kcal á mann. Ég mun seint segja að þessi réttur sé hollur þar sem ég notaði núðlupakka en það er samt slatti af grænmeti í honum, ágætis redding :)

Hráefni:
1 laukur
3 hvítlauksgeirar
5 sveppir
1,5 cm bútur fersk engifer rót
4 beikonsneiðar
2 rauðar paprikur
2 egg
1 stk. 3 mínútna núðlupakki (ég notaði beef bragðið)
Tamari soy sauce
Salat blöð eftir þörf, hjá mér var þetta ca. 2 lúkur (salatblanda)
Extra virgin olive oil

Aðferð:
1. Saxa laukinn, hvítlaukinn, engiferrótina og sveppina. Skera paprikuna og beikon í bita.
2. Hita ca. matskeið af olíu á hæsta hita og setja allt í lið nr. 1 á pönnuna.
3. Þegar þetta er allt orðið léttsteikt er best að ýta öllu á helming pönnunar á meðan hinn helmingurinn er notaður til að spæla egginn (dreifa rauðunni). Þegar eggin eru spæld er þeim blandað út í blönduna.
4. Græja núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
5. Skera salatblöðin niður og bæta við grænmetið á pönnunni.
6. Bæta núðlunum og örlítið af soðinu út á pönnuna, blanda vel saman.
7. Skvetta smá tamari soy sauce yfir réttinn (eftir smekk).

Ready to eat!



No comments: