Saturday, August 8, 2015

Wake up!

Jæja, það er kominn dágóður tími síðan ég ætlaði að opna bloggið mitt aftur en sökum anna á Special Olympics í LA og að vera of upptekin við að sofa síðustu daga þá var bara ekkert að frétta hjá mér... ég er án djóks búin að vera svona síðustu daga!


Bára og Eyrún geta stutt þessa frásögn þar sem að þær voru með mér í bústað í nokkra daga og ég var nánast sofandi allan tímann!


Special Olympics var þvílíkt skemmtilegt ævintýri og er ég ótrúlega stolt af krökkunum okkar. Þau eru svo einstakir karakterar og gerðu ferðina ekki bæði ógleymanlega heldur einstaklega skemmtilega. Opnunarhátíðin var að mér fannst mjög flott enda var uppselt inn og skartaði fólki eins og Michelle Obama, Eva Longoria, Stevie Wonder, Avril Lavigne og helling af öðru merku fólki. Mér skilst þó að opnunarhátíðin í Grikklandi fyrir 4 árum síðan hafi verið mun flottari, sem kemur á óvart, þar sem að ég hefði haldið að Bandaríkjamenn væru alltaf þjóðin sem toppar.



Ég var svo heppin að vera með frábæran herbergisfélaga og meðþjálfara með mér í för að ég hef sjaldan hlegið jafn mikið. Ekki nóg með það þá pískaði mér hún áfram, leyfði mér ekki að taka lyftu (vorum á 6. hæð og krakkarnir á 4. og 3. hæð) sem orsakaði endalausan stigafjölda á hverjum degi ásamt löngum og góðum göngum. Er ekki frá því fötin hafi verið orðin nokkuð víð eftir þessa ferð, ágætt kick start.


Þessi ferð opnaði einstakan heim fyrir mér og er ég spennt fyrir því að halda áfram að vinna með þessu einstaka fólki.

Vonandi er ég almennilega vöknuð núna enda komnir 5 dagar síðan ég kom heim, en mér skilst á reglan sé sú að það taki jafn marga daga að komast í rútínu líkt og tímamismunurinn er, sem þýðir 2 dagar í viðbót. Ég neita að trúa því.

Ég er búin að vera mikið hugsi undanfarna daga og þetta quote náði mér:


Sem fyrir mér þýðir bara:


Ég er farin í göngu, þar til seinna :) 

No comments: