- Taking care of your body and soul, seek meaning and purpose, meditation -
Þegar ég var í skólanum voru verkefnin sett upp sem vikuverkefni en ástæðan fyrir því að ég ákvað að byrja á þessu verkefni er vegna þess að þetta verður mitt ársverkefni.
Hvernig skal fara að þessu? Kennarinn okkar benti okkur á eftirfarandi atriði.
Borðaðu góðan mat sem gefur orku
Ég var alveg búin að gíra mig upp í viku af detoxi, ofur æfingum o.s.frv. líkt og öfgi eins og ég á það til að gera, þar til ég mundi að ég var búin að setja mér það markmið að hætta öllum öfgum. Af hverju? Því ef ég fer út í öfga þá gefst ég fyrr eða síðar upp, plús að það getur ekki verið hollt fyrir sálina né líkamann.
Líkaminn ákvað augljóslega að hann væri búin að fá meira en nóg af sukkinu og hreyfingarleysinu, þar sem að ég fór inn í nýja árið í veikindum og lá heima veik allan mánudaginn - daginn sem ég ætlaði að byrja á öllum öfgunum. Spurning hvort líkaminn hafi verið að segja mér eitthvað?
Ég ákvað því að taka hlutina rólega svona til tilbreytingar. Eina breytingin sem ég gerði í þessari viku var að taka ger út úr matarræðinu og þegar ég er tilbúin tek ég það næsta út. Planið er að losa mig við allt sem heitir ger, hvítur sykur, hvítt hveiti, hvít grjón, unnar vörur o.s.frv. eða að borða sem náttúrlegastan og eins óunnin mat og ég get. Þetta mun þó ekki gerast á einum sólarhringi, það hef ég lært af lexíunni.
Eplaedik, nýkreistur sítrónusafi, lýsi, hörfræolía, d vítamín, omega-3, B vítamín, járn, zynk, magnesíum og kalk, grænmeti, egg, kjúklingur, grænt epli og nóg af vatni hefur þó fengið að líta dagsins ljós aftur og tilheyrir aftur dagsrútínunni. Mér líður strax betur!
Stundaðu skemmtilega hreyfingu
Ég fór loksins á æfingu í dag en ég hef verið í fríi frá því fyrir jól - líkaminn fékk alveg að finna fyrir því. Fyrir mér er skemmtileg hreyfing að henda mér upp í Gerplu á fimleikaæfingu, fara út að hlaupa eða í göngu. Planið er að reyna koma mér á fætur í morgunsárið og hefja daginn á göngu eða skokki og góðum teygjum. Í það minnsta mun ég hér eftir hreyfa mig að lágmarki í 20 mínútur á dag.
Leyfðu þér að hvílast og náðu upp orku
Svefn skiptir svo miklu máli. Vegna mikillra bakverkja undanfarið hef ég lítið getað sofið en eftir snilldar nudd í dag, góða æfingu og góðar teygjur trúi ég ekki öðru en að ég muni sofa vel í nótt :) Ég held meira að segja að ég panti mér bara tíma hjá kírópraktornum mínum á morgun! Bara það að hugleiða eða loka augunum í 10 mínútur getur gert helling fyrir mann til að endurnærast og ná upp orku.
Njóttu fegurðar
T.d. fallegrar náttúru, listar, hluta, fatnaðar og matar.
Ljósmynd: Gísli Kristinsson
Þegar ég gekk í gegnum þessa viku í haust þá smellti ég yfirleitt á mig rauðum varalit á hverjum degi, valdi fötin af kostgæfni, slökkti á fréttunum og hlustaði á góða tónlist í staðinn á leiðinni í vinnuna, naut útsýnisins og náttúrunnar og borðaði alltaf fallegan mat, þ.e. matar sem er fallega settur á disk og litríkur. Það þarf ekki meira til! Stoppaðu í smá stund og njóttu fegurðarinnar, hvernig sem hún er og hvar sem hana er að finna.
Eigðu stund með þínum nánustu
Mínir nánustu skipta mig mestu máli í lífi mínu og reyni ég að vera í kringum þau eins mikið og ég get. Ég veit ekki hvar ég væri án þeirra. Ef einhver getur gert mig hamingjusama og glaða, þá eru það einmitt mínir nánustu. Njóttu lífsins með þeim, gefðu þér tíma. Ef þú ert hamingjusöm/hamingjusamur þá færðu ósjálfrátt meiri orku.
Brostu og hlæðu
Það er ekkert betra en að fá harðsperrur í kinnarnar og magann út af því að maður hlær svo mikið og brosir svo breytt. Því miður er það í dag orðið of sjaldgæft. Ef maður velur fólk í kringum sig sem lætur manni líða vel og gleður mann, þá ætti þetta ekki að vera vandi. Hláturinn lengir lífið!
Að finna tilgang sinn og hugleiða
Hugleiðsluleiðbeiningarnar bíða spenntar eftir mér í veskinu mínu, vonandi tek ég þær upp einhvern tíman núna á næstunni og fer að stunda hana. Stefnan er jafnframt tekin á göngutúra þar sem maður getur leyft huganum aðeins að reika og gleymt sér í smá stund.
Njótið lífsins, það ætla ég mér að gera :)
No comments:
Post a Comment