Jæja þá er komið að áramótaheitinu ...
ég ætla að byrja blogga aftur! Og hvað er hentugra sem fyrsta færsla annað en yfirlit yfir árið 2013?
Það er frekar skrýtið að átta sig á því að árið 2013 var ekki bara sorg og erfiðleikar. Þegar ég hugsa um árið 2013 hef ég hingað til eingöngu hugsað um missirinn og sorgina sem ég upplifði þetta árið. Þegar ég loksins settist niður og fór að skoða myndir áttaði ég mig á því árið í heild sinni var ekki svo slæmt eftir allt saman. Það var líka gleði í árinu.
Stórir og merkir atburðir í lífi Halldóru minnar
Janúar byrjaði á mikillri gleði þar sem að hún Halldóra vinkona átti ótrúlega fallega stúlku með honum Benna sínum. Ég gjörsamlega féll fyrir henni.
Stúlkan hlaut hið fallega nafn Matthildur Ísey.
Ekki var sagan öll hjá henni Halldóru minni, heldur var hún gæsuð með prompi og prakt og sett í gervi Carrie Bradshaw.
Því næst giftist hún Benna sínum og var gestum boðið í ofboðslega fallega veislu sem haldin var í Bláa Lóninu. Ég samdi texta við lagið "Living next door to Alice" sem fjallaði um ferðarlag hennar og Benna. Það var nú ekki það eina heldur henti ég mér líka á sviðið með Mumma Hermanns og söng lagið undir hans undirspili. Mér til mikillrar ánægju er ekki til video af þessum atburði, eða ég vona ekki, þar sem ég er það sem eflaust má kalla hinu fallega orði FÖLSK. Sem betur fer studdu bræður hennar og mágkonur mig og komu upp á sviðið og sungu með. Bara snilld. Efast þó stórlega um að ég stígi einhvern tíman aftur á svið og syng.
Ferðarlög
Ferðalögin voru nokkuð mörg á þessu ári en þau voru aldrei þessu vant flest öll innanlands og megnið af þeim voru til Akureyrar. Í upphafi árs skellti ég mér til Akureyrar á Fótboltamót Fjármálafyrirtækja og tók að mér klappstýru hlutverkið og veitti þar með fyrirtækinu mínu stuðning. Ferðin fór þó aðallega í að skemmta mér með vinkonum mínum :)
Vörður náði svo þeim merkilega áfanga að ná undir 100 í samsettu hlutfalli sem er mjög jákvætt og vilja öll tryggingafélög vera undir þessari tölu. Í tilefni þessara skemmtilegu frétta fórum við til Akureyrar í æðislega árshátíðarferð. Þar var ég svo heppin að vinna svítuna í happdrætti og að prófa vélsleða í fyrsta skipti á ævinni. Einstaklega skemmtileg ferð.
Sumarbústaðarferðirnar voru að sjálfsögðu margar líka og naut ég þeirra allra í einstaklega góðum félagsskap fjölskyldu og vina. Tími minn þar með honum afa mínum er algjörlega ómetanlegur.
Í júlí fórum við Eyrún og Bára til Krítar og áttum þar rosalega góðar stundir. Eftirminnilegast var þó Santorini ferðin okkar en ég hef sjaldan eða aldrei séð jafn mikla fegurð. Ég leyfi myndunum að lýsa öllu sem lýsa þarf.
Um verzlunarmannahelgina skellti ég mér svo til Eyja ásamt fríðu föruneyti.
Og síðasta ferðarlag ársins var svo til Akureyrar, í þriðja skiptið á árinu, til að dæma á Haustmóti FSÍ. Ferðin var mjög skemmtileg og eyddi ég mest öllum laugardeginum í menningarrölt með henni Kristínu.
Að öðru leiti var sumrinu eytt í hittinga í hádegismat, eftir vinnu hittinga og svo á pallinum á Heiðarbrúninni.
Góð kaup á árinu!
Ég ákvað að vera góð við sjálfa mig og keypti mér draumabílinn, Volkwagen Beetle Design. Þessi bíll er enn í dag draumur og verður það í mörg ár í viðbót - alltaf gaman að kaupa sér eitthvað sem manni virkilega langar í. Ég afrekaði það í leiðinni að bóna í fyrsta skiptið á ævinni, geri aðrir betur! ;) hehe
Nýbónaður og fínn! ;)
Ég verslaði mér svo loksins alvöru rúm og mæli ég sko með því að allir skelli sér í Svefn og Heilsu og versli sér eitt gott IQ Care rúm!
Hér er kannski ekki hægt að tala um kaup ársins, heldur meira leigu ársins. Ég sótti um í Háskólagarðana og komst inn og flutti í lok árs! Jibbí kóla! Leiga ársins þar sem það er frekar mikill munur á verði hjá þeim heldur en á leigumarkaðnum í Reykjavík.
Ég uppgötvaði frábæra hönnun hjá henni Rakel en hún hannar undir nafninu Afrodita.
Skólinn!
Ég útskrifaðist loksins úr Tryggingaskólanum í flottri útskrift frá HR í apríl. Þessi skóli var langt frá því að vera auðveldur og var því mjög mikill léttir þegar ég loksins kláraði, þar sem álagið var mjög mikið. Því var að sjálfsögðu fyrst fagnað með hópnum en við skelltum okkur á Grillmarkaðinn eftir útskriftina og svo fagnaði ég því líka með því að fara út að borða með vinkonunum á Caruso.
Ég hafði greinilega rosa gott af þessu þar sem að ég var varla búinn með skólann þegar ég sótti loksins um Masters nám í HÍ í Stjórnun og stefnumótun og fékk inngöngu. Því hóf ég skólagöngu mína núna í haust með 100% vinnu en ég varla finn fyrir því þar sem þetta er svo gaman! Þvílíkur munur að læra eitthvað sem maður hefur áhuga á, þar sem að ég get ekki sagt að ég hafi haft mikinn áhuga á lögfræðinni á sínum tíma.
Fimleikarnir!
Fimleikaárið mitt hófst á því að ég náði E landsdómararéttinum í áhaldafimleikum karla. Þetta þýðir að ég hef ekki eingöngu rétt til þess að dæma 2. - 6. þrep líkt og áður hefur verið heldur hef ég líka rétt til þess að dæma frádráttinn í 1. þrepi og frjálsum æfingum. Þar sem þetta er svo mikill frumskógur ákvað ég að bíða algjörlega með D dómararéttindin þar til betur stendur á en ég var mjög stolt af þessu þar sem ég er eini kvenmaðurinn með slík réttindi... ekki það að margar hafi reynt við þau, held að engin hafi reynt! haha... klikkaða Eva!
Fyrsta mótið sem ég dæmdi var Bikarmót 2013 og var mjög skemmtileg upplifun að dæma svona færa stráka.
Á árshátíð GGG vann ég fjöldan allan af medalíum - Evu verðlaunin m.a. !! Mér skilst þó að ég eigi alls ekki vera hreykin af Evu verðlaununum... skil samt ekkert í því ;)
Ég hélt tvö partý á hóteli fyrir hópinn, geri aðrir betur! haha... Ég býst þó við því að ég sé ekki vinsæll gestur lengur.
Yndislegi hópurinn minn sem ég þjálfa í Gerplu keppti í sitt fyrsta skipti á Íslandsmóti og tóku svo jafnframt þátt í vorsýningunni líkt og þau hafa áður gert. Ef þessi hópur gefur lífi mínu ekki lit þá veit ég ekki hvað, ég er afskaplega þakklát fyrir að fá að þjálfa þennan hóp, þau eru yndisleg!
Hlaupin!
Þó ég hafi ekki náð markmiði mínu fyrir árið 2013 með 1.000 km á árinu þá hljóp ég samt slatta en vantaði þó tæpa 150 km upp á. Það þýðir lítið að svekkja sig á því. Ég tók hinsvegar bara þátt í tveim hlaupum sem voru skráð. Fyrst hljóp ég 10 km með Báru í Suzuki hlaupinu.
Og svo tókum við stöllur þátt í hálfmaraþoni í Reykjavíkurmaraþoninu. Ég fékk því í fyrsta skipti hálfmaraþon skráð - annað en þegar ég var rammvillt árið 2012 í Berlín að hlaupa ein hálfmaraþon. Ég náði tímanum 2 klst. og 15 mín sem var akkurat markmiðið mitt en svo er bara að bæta sig á nýju ári.
Merkilegir viðburðir
Mörgu var fangað á nýju ári og var upphafið á þeim veislum níræðisafmæli Rúnu ömmu. Að hugsa sér, pant fá genin hennar!
Því næst var skotist í Garðabæ í rosa flotta útskriftarveislu hjá Ernu okkar.
Allar urðu æskuvinkonurnar þrítugar en eingöngu tvær héldu upp á þann atburð og var önnu þeirra Kristín Hjartar.
75 ára afmæli Höllu ömmu var haldið á Heiðarbrúninni góðu og var hennar nánasta mætt á svæðið til að fagna með henni.
Við Bifrastarvinkonurnar komum Silju á óvart og fórum með hana í óvissuferð til Selfossar. Hún vissi ekki af mér og Taníu fyrr en við skutumst út úr samliggjandi herbergi og önnur eins öskur hef ég sjaldan heyrt. Tilefnið var að sjálfsögðu þrítugsafmæli hennar.
Að lokum var það your's truely sem varð tuttuguogtíu... ;) Hélt ég upp á afmælið með suðrænu þema og miklu fjöri.
Ekki má þó gleyma brúðkaupsafmæli mömmu og pabba en þau eru búin að vera gift núna í 33 ár!
Mágkona! Jei!
Hann bróðir minn var svo góður að gefa mér yndislega mágkonu sem er sú myndarlegasta sem fyrir finnst. Hún Svava ekki bara eldar góðan mat heldur bakar hún út í eitt! Og ofan á allt þá er svo huggulegt heima hjá henni og hún er alveg með kósýlegheitin á hreinu.
Að eiga góða að.
Sorgin dundi yfir okkur í ágúst og september þar sem tveir fallegustu menn jarðarinnar kvöddu þennan heim. Elsku besti Gulli afi minn og elsku Siggi frændi bróðir hans kvöddu okkur með stuttu millibili. Á tímum sem þessum áttar maður sig enn betur á því hvað það er gott að eiga góða að og að njóta þess að eyða tímanum með sínum nánustu. Ég lýk því færslunni á myndum af yndislegum mönnum og yndislegri fjölskyldu minni... og að sjálfsögðu frábæru hundunum sem gefa lífinu lit, þeim Gulla og Guðmundi sem einmitt eru skýrðir í höfuðið á mínum elskulegum öfum sem báðir eru fallnir frá.
Þessir komu haugaskítugir inn og skyldu ekkert í því að vera hent ofan í bað!
Ég gæti eflaust endlaust skrifað og sett inn myndir af liðnu ári en ég held að þetta sé orðið gott. Ég þakka ykkur innilega fyrir árið og vona að árið 2014 verði okkur öllum gæfuríkt og gott.
Ykkar,
Eva Hrund
































































































































No comments:
Post a Comment