Tuesday, October 13, 2015

Pick a color - Unplug every day!

Ég gleymdi alltaf að setja þetta inn en ég fékk eftirfarandi verkefni í bókinni "Unplug every day".


Mér fannst þetta frekar fyndið verkefni en ákvað að velja fjólubláann og ég verð að viðurkenna að svona verkefni er mjög hollt fyrir manneskju eins og mig. Ég get verið það utan við mig að ég er ekkert að taka eftir neinu í nærumhverfinu og það er mjög sjaldgæt að ég geti munað t.d. í hvernig fötum fólk var og afar sjaldan tek ég eftir því að einhver er búin að klippa hárið á sér eða eitthvað slíkt. Þannig að ég hef mjög gott af verkefnum sem þessum, þar sem að ég þarf að vera skoða umhverfið mitt. Hér er afraksturinn.


 
 
 
 
 



Friday, October 9, 2015

Orkumikið banana, bláberja og chia smoothie

Ég er dottin í smoothie/boozt stuð!

Þetta er sá nýjasti :)



Hráefni
100 gr. frosin bláber
100 ml bláberjasafi frá Berry Company
1 banani
20 gr. chia fræ
200 ml vatn
4 klakar


Enn og aftur, blanda saman í blandara og hella í glas, flóknara gæti það ekki verið.

**Þessi telur tæpar 300 kaloríur, þar af 65 gr. kolvetni, 7 gr. prótein og 7 gr. fitu.

Nammi boozt

Ég kom heim um daginn, dauðþreytt og "kreifaði" í eitthvað sætt en samt ekki alveg of sætt en úr varð þessi nammi boozt, rosalega góður, mæli með honum! :) 



Hráefni
1 x banani
1 x lúka af frosnum jarðaberjum
1 msk súkkulaðispænur (og aðeins meira til skreytingar)
200 ml vatn
Nokkrir klakar
Þeyttur rjómi

Aðferð
Í blandara með allt nema rjómann. Setjið rjómann svo á þegar búið er að hella í glas og smá spænir yfir.

Thursday, October 8, 2015

I'm alive!

Jæja er ekki komin tími til að skrifa eitthvað hér inn :)

Það er ekki að ástæðulausu að ekkert hefur heyrst frá mér í einhvern tíma, ég búin að vera í ýmsum verkefnum (líkt og rétt í þessu tók ég næstum puttann af mér við að hleypa hundunum út - klaufaskapurinn hverfur seint - vel gert Eva, vel gert!), sum splunkuný og önnur gömul líkt og...


Fyrir 2 árum hóf ég mastersnám í stjórnun og stefnumótun með vinnu en þurfti svo að frysta það, sökum mikilla anna. Ég ákvað því að taka upp þráðinn og klára þessa gráðu loksins.


Einnig gamalt verkefni, nema að ég er ekki bara að þjálfa fatlaða í dag, ég er einnig byrjuð að þjálfa 3 strákahópa, ágætt fyrir karladómarann að fara í þetta verkefni :) 


Eftir Special Olympics í LA fannst mér komin tími á að fleiri félög en Gerpla myndu bjóða upp á fimleika fyrir fatlaða þannig að ég talaði við Fimleikadeild Keflavíkur sem tók svona líka vel í hugmyndina og er í dag komið í samstarf við Nes. Þannnig að ég er byrjuð að þjálfa í Keflavík líka :)


Eftir ljósanótt fylltist ég innblæstri og fann þessa fínu föndurbúð. Í kjölfarið fór ég að hekla í kringum kúlur og að búa til hálsfestar. Það skemmtilega við þetta var að ég var spurð hvort ég væri að selja þær og því ákvað ég bara að fara á fullt og er komin í sölu á hálsfestum og armböndum. Þetta verkefni er svolítið búið að eiga allan hugann minn þegar ég er ekki í ofangreindum verkefnum. Endilega kíkið á Facebook síðuna:




Engu að síður átti þetta blogg líka að eiga hluta af mér og hef ég algjörlega vanrækt það ásamt mörgu öðru, en nú er kominn tími á breytingar.

Þar til seinna :) 

Tuesday, September 1, 2015

Íslensk kjötsúpa "ala Eva"

Það er fátt sem mér þykir jafn gott og kjötsúpa, enda er hún næringalega vel upp sett. Þú færð holla fitu, grænmeti, prótein og kolvetni - algjörlega perfect. Ég man eftir því þegar ég var í prófatörn á Bifröst þá henti ég bara í stóran pott og lifði svo á súpunni í nokkra daga - ég þurfti ekkert annað :) Það er misjafnt hvernig súpan er matreidd en ég ákvað að setja inn hvernig ég geri súpuna.


Hráefni
1,2 kg. súpukjöt (voru ca. 7 bitar)
3 lítrar vatn
2 rófur
1 poki gulrætur
1 laukur
1/2 bolli hrísgrjón
2 kínverskir hvítlaukar
Rúmlega hálfur poki súpujurtir
1,5 nautakraftur (sem myndi jafngilda 1,5 lítra af soði)
Salt (ég notaði gróft himalaya)

Aðferð
1. Settu vatnið í pott og á hæsta hita þar til það sýður.
2. Bættu ca. teskeið af salti út í vatnið og bættu kjötinu við, lækkaðu hitann og leyfðu kjötinu að sjóða í minnsta kosti 45 mínútur (því lengur því betra).
3. Skerðu laukinn í helminga og svo sneiðar og bættu út í pottinn.
4. Saxaðu hvítlaukinn niður og bættu út í pottinn.
5. Skerðu gulræturnar og rófurnar niður í munnbita.
6. Taktu kjötið upp úr pottinum og skafðu í burt alla hvíta froðu ef hún er til staðar í pottinum. Bættu núna gulrótunum, rófunum og nautakraftinum út í.
7. Skerðu kjötið niður í munnbita og hentu beinunum. Bættu kjötinu við ásamt súpujurtum og hrísgrjónum.
8. Saltaðu eftir smekk. Mér finnst best að sjóða þar til að gulræturnar og rófurnar eru orðnar vel mjúkar.

Súpan er svo bara klár, en hún er best eftir því sem hún fær að malla lengur og enn betri daginn eftir :)

Wednesday, August 26, 2015

Satay kjúklingasalat

Ég gjörsamlega ELSKA þetta salat, ótrúlega einfalt í matreiðslu og það finnst nákvæmlega öllum þetta geggjað. Ég ætla þó ekki að taka heiðurinn af þessari uppskrift þar sem að ég fékk hana frá Sigrúnu frænku sem fékk hana einhvers staðar. Ef ég google-a þessa uppskrift þá koma ýmsar gerðir af henni fram þannig að ég tel það nokkuð víst að ekki er vitað hvaða snillingur fann upp á henni upphaflega. Anyways, eftirfarandi uppskrift nægir alveg fyrir minnsta kosti 4.



Hráefni
4 stórar kjúklingabringur
1 spínatpoki
1 askja af kirsuberjatómötum
1 rauðlaukur
1 krukka satay sósa
1 krukka feta ostur í kryddolíu
Extra virgin olive oil
Cous cous ... Mér þykir gott að nota venjulegt en í gær var bara til exotic spices þannig að ég notaði það og það virkaði bara alveg eins vel. Mér þykir einstaklega gott að setja smá smjör út í blönduna þegar hún er klár. Ég og Sigrún frænka prófuðum líka einu sinni að nota rautt quinoa (sem er mun hollara en cous cous) og það var líka rosalega gott.

Aðferð
1. Skerið kjúklingabringuna í bita og steikið upp úr olíunni á hæsta hita þar til að kjúklingurinn er steiktur í gegn. Bætið þá satay sósunni við og steikið þar til að sósan er orðin vel þykk og í raun föst við kjúklinginn.
2. Gerið cous cous skv. leiðbeiningum á pakka. Mjög gott að setja smá smjör út í þegar blandan er klár og hræra vel í.
3. Dreifið spínati í skál.
4. Setjið cous cous blönduna yfir spínatið.
5. Næst er kjúklingurinn settur yfir cous cous-ið.
6. Skerið kokteiltómatana í helminga eða í fernt og dreifið yfir.
7. Skerið rauðlaukinn í helminga og því næst í sneiðar og dreifið yfir.
8. Dreifið fetaosti og olíu yfir salatið.

Og þá er salatið klárt, einfaldara gæti þetta ekki verið :) 

Tuesday, August 18, 2015

Unplug every day - Organize your closet

Jæja þá hef ég klárað verkefni 2 í þessari snilldar bók "Unplug Every Day".

Verkefni var "Organize your closet". 


Það er nú ekki langt síðan að ég tók skápinn minn í gegn en ég ákvað að taka þessari áskorun og tók allt út úr skápnum sem er ekki í notkun akkurat núna sem og sumarfötin og tók vetrarfötin upp.

Þessi fatahrúga fór því út úr skápnum í bili.


Og skipulagið í skápnum varð mun betra :) 




Ég verð að viðurkenna að þetta var gott verkefni. Núna eru ekki föt sem ég er ekki að nota þessa stundina fyrir mér og því ætti að vera einfaldara að finna sér eitthvað til að fara í. En jafnframt fannt mér þetta verkefni "andlega nærandi" ... Maður dettur í eitthvað zone þegar svona verkefni eru unnin :) 

Ég rakst á þessa síðu þar sem farið er í gegnum hvernig á að taka skápinn í gegn. Það er nú eitthvað svipað hjá mér og í þessari grein eða t.d.

1. Notaðu viðeigandi herðatré
Það fer ekkert meira í taugarnar á mér en alls konar herðatré og því eru mín öll alveg eins. Í þessu tilviki er þó verið að tala um herðatré sem hentar hverri flík.

2. Sjáðu skónna þína
Mínir eru allir í hillu þannig að ég sjái þá.

3. Geymdu föt fyrir hverja árstíð
Ég er byrjuð á þessu, sumarfötin fóru í þetta skipti í geymslu og vetrarfötin voru tekin upp. Sorry en sumarið er búið :( 

4. Flokkaðu fötin
Ég er með alla kjóla, buxur og pils, jakka og peysujakka, toppa og peysur hengt upp og litaraðað.

5. Litaraðaðu skápnum
Líkt og ég sagði í nr. 4 :) 

6. Eyddu út óreiðu
Ég verð að sjá fötin mín og því set ég það sem ég nota ekki þessa stundina eitthvert annað. Nenni ekki óreiðu.

Áhugaverðar pælingar í þessari grein :) 

Saturday, August 15, 2015

Fajita á no time :)

Þennan rétt gerði ég á NO TIME þegar hungrið var að drepa mig, en enn og aftur notaðist ég bara við það sem til var og heppnaðist þetta einstaklega vel. Þessi uppskrift miðast við tvo.



Hráefni:
2 heilhveiti tortillur
1 rauð paprika
1 rauðlaukur
1 stór kjúklingabringa (eða 1 bringa og lund af heilum kjúklingi líkt og ég notaði)
1 kínverskur hvítlaukur (s.s. þessir sem eru ekki í geirum)
Salatblanda
Extra virgin olive oil
Ostur
Salsa sósa
Sýrður rjómi, grísk jógúrt eða majones

Aðferð:
1. Skerið paprikuna í strimla, rauðleikin í sneiðar og saxið hvítlaukinn.
2. Hitið olíuna á pönnu og setjið allt í lið nr. 1 á pönnuna.
3. Skerið kjúllan í bita og bætið við á pönnuna.
4. Smyrjið tortilluna með sýrðum rjóma, grískri jógúrt eða majonesi. Smyrjið svo með salsa sósu. Setjið ost á helmingin af tortillunni. Setjið inn í örbylgju á hæsta hita í ca. 30 sek.
5. Skerið niður salatið og setjið ofan á ostinn.
6. Bætið því sem var á pönnunni ofan á salatið og lokið svo tortillunni og setjið smá salsa sósu ofan á.

Lunch is served ;) 

Unplug Every Day - Verkefni 1

Ég keypti snilldar bók þegar ég var í LA sem heitir "Unplug every day - 365 Ways to Log Off and Live Better". 



Þessi bók er s.s. full af verkefnum, sum mjög einföld en önnur aðeins erfiðari. Ég er nú þegar búin með eitt af þessum verkefnum, en það var alls ekki flókið. Verkefnið var "Go for a stroll and let nature (or the city) be your soundtrack."


Þar sem ég fer oft í göngu og það kemur fyrir að ég gleymi heyrnatólum þá ákvað ég að fara í þetta verkefni þegar það var bandbrjálað veður úti.... haha já... hefði mátt sleppa því. Ég endaði á því að labba 7 km í óveðri og með enga tónlist í eyrunum, bara hávaða rok og rigningu. Ég verð nú að viðurkenna að náttúran var ekki besta "soundtrack-ið" akkurat þarna. Ekki nóg með að ég fór í þessu klikkaða veðri heldur ákvað ég að labba meðfram sjónum og fékk ófáar sjógusur yfir mig enda var ekki til þurr blettur á mér þegar ég kom tilbaka. Ég verð þó að viðurkenna að maður tekur betur eftir umhverfinu þegar maður skilur tónlistina eftir heima, ég tók m.a. eftir öndum í sjó... Er það bara eðlilegt? Og í þessum öldugangi í þokkabót? 

Þetta var tónlistin í eyrum mér:


Næsta verkefni er aðeins flóknara og mun því taka aðeins lengri tíma til að klára. Ég er að fíla þessa bók, mæli með henni :) 

Wednesday, August 12, 2015

Fljótlegur bacon grænmetisnúðluréttur

Best að skella hér inn uppskrift af þessum rétti áður en ég gjörsamlega gleymi hvað ég gerði en hann heppnaðist vel þrátt fyrir að þetta hafi verið svokallaður "afgangs" eða "redda sér" réttur, þar sem mér fannst ekkert vera til í skápunum.



Rétturinn er fyrir tvær manneskjur og eru rúmlegar 400 kcal á mann. Ég mun seint segja að þessi réttur sé hollur þar sem ég notaði núðlupakka en það er samt slatti af grænmeti í honum, ágætis redding :)

Hráefni:
1 laukur
3 hvítlauksgeirar
5 sveppir
1,5 cm bútur fersk engifer rót
4 beikonsneiðar
2 rauðar paprikur
2 egg
1 stk. 3 mínútna núðlupakki (ég notaði beef bragðið)
Tamari soy sauce
Salat blöð eftir þörf, hjá mér var þetta ca. 2 lúkur (salatblanda)
Extra virgin olive oil

Aðferð:
1. Saxa laukinn, hvítlaukinn, engiferrótina og sveppina. Skera paprikuna og beikon í bita.
2. Hita ca. matskeið af olíu á hæsta hita og setja allt í lið nr. 1 á pönnuna.
3. Þegar þetta er allt orðið léttsteikt er best að ýta öllu á helming pönnunar á meðan hinn helmingurinn er notaður til að spæla egginn (dreifa rauðunni). Þegar eggin eru spæld er þeim blandað út í blönduna.
4. Græja núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
5. Skera salatblöðin niður og bæta við grænmetið á pönnunni.
6. Bæta núðlunum og örlítið af soðinu út á pönnuna, blanda vel saman.
7. Skvetta smá tamari soy sauce yfir réttinn (eftir smekk).

Ready to eat!



101 listinn

Ég áttaði mig á því um daginn að í meira en eitt ár hef ég ekkert verið að sinna 101 listanum mínum þrátt fyrir að hann sé beint fyrir framan augun á mér. Þetta náttúrlega gengur ekki og ætla ég núna að fara að skoða hann á hverjum degi þar sem þetta hefur klárlega áhrif. Ég hef nú þegar klárað 4 hluti á listanum þrátt fyrir að hafa ekki verið að sinna honum nægjanlega vel.

Ætla að gera:


Santa Monica

Já ég fór nú heldur betur til LA fyrir 3 vikum síðan og kom heim fyrir 1 viku. Yndisleg ferð líkt og ég hef áður talað um en ég skoðaði hinsvegar afskaplega lítið, enda varla til mynd af mér til þess að sanna þessa ferð. Þó þessu markmiði sé náð held ég að ég setji upp ný markmið og sundurliði þennan lið betur líkt og "skoða Hollywood Boulevard" o.s.frv.

Ég sló svo tvær flugur í einu höggi þegar ég kláraði eftirfarandi markmið.




Ég fór ekki bara með henni til New York heldur flaug hún mér þangað, geri aðrir betur :)



Eitt er þó víst, þetta var klárlega ekki í síðasta skiptið sem ég fer í ferðalag með henni Halldóru minni :) 

Ætla að verða:



Í dag mun ég svo uppfæra þennan frábæra lista minn, þar sem að það er nokkuð augljóst að ef markmiðin eru ljóslifandi fyrir framan mann (þó maður gleymi að sinna listanum sjálfum) þá getur allt gerst.

Ekki er heldur verra þegar maður er komin með þetta fína plaggat af honum Jóhanni Fannari fyrir ofan listann :) 

Saturday, August 8, 2015

Wake up!

Jæja, það er kominn dágóður tími síðan ég ætlaði að opna bloggið mitt aftur en sökum anna á Special Olympics í LA og að vera of upptekin við að sofa síðustu daga þá var bara ekkert að frétta hjá mér... ég er án djóks búin að vera svona síðustu daga!


Bára og Eyrún geta stutt þessa frásögn þar sem að þær voru með mér í bústað í nokkra daga og ég var nánast sofandi allan tímann!


Special Olympics var þvílíkt skemmtilegt ævintýri og er ég ótrúlega stolt af krökkunum okkar. Þau eru svo einstakir karakterar og gerðu ferðina ekki bæði ógleymanlega heldur einstaklega skemmtilega. Opnunarhátíðin var að mér fannst mjög flott enda var uppselt inn og skartaði fólki eins og Michelle Obama, Eva Longoria, Stevie Wonder, Avril Lavigne og helling af öðru merku fólki. Mér skilst þó að opnunarhátíðin í Grikklandi fyrir 4 árum síðan hafi verið mun flottari, sem kemur á óvart, þar sem að ég hefði haldið að Bandaríkjamenn væru alltaf þjóðin sem toppar.



Ég var svo heppin að vera með frábæran herbergisfélaga og meðþjálfara með mér í för að ég hef sjaldan hlegið jafn mikið. Ekki nóg með það þá pískaði mér hún áfram, leyfði mér ekki að taka lyftu (vorum á 6. hæð og krakkarnir á 4. og 3. hæð) sem orsakaði endalausan stigafjölda á hverjum degi ásamt löngum og góðum göngum. Er ekki frá því fötin hafi verið orðin nokkuð víð eftir þessa ferð, ágætt kick start.


Þessi ferð opnaði einstakan heim fyrir mér og er ég spennt fyrir því að halda áfram að vinna með þessu einstaka fólki.

Vonandi er ég almennilega vöknuð núna enda komnir 5 dagar síðan ég kom heim, en mér skilst á reglan sé sú að það taki jafn marga daga að komast í rútínu líkt og tímamismunurinn er, sem þýðir 2 dagar í viðbót. Ég neita að trúa því.

Ég er búin að vera mikið hugsi undanfarna daga og þetta quote náði mér:


Sem fyrir mér þýðir bara:


Ég er farin í göngu, þar til seinna :)