Tuesday, January 28, 2014

Góður "læra"lagalisti

Ég mæli með þessum lagalista hér ef þið eruð eins og ég, þ.e. með athyglisbrest þegar þið eruð að reyna læra. Þessi lagalisti kom mér í gegnum prófin í desember og er búin að hjálpa mér að ná einbeitningu í kvöld við lesturinn. Hann er líka fullkominn til hugleiðslu.


Getið líka smellt á þennan link hér: 

Sunday, January 26, 2014

Sizzling grilled fajita!

Uppskrift fyrir 2







Hráefni
2 kjúklingabringur
2 heilhveiti tortillur
1 lítil rauð paprika eða 1/2 stór
1 venjulegur laukur
Creola krydd
Gróft salt
Extra virgin olive oil
Cayenne pipar
Sýrður rjómi
Salsa sósa
Ostur
Kál

Aðferð
1. Skerið laukinn í tvennt og svo niður í sneiðar og setjið í skál.
2. Skerið paprikuna í sneiðar og setjið með ofan í skálina.
3. Setjið olíu, gróft salt og cayenne pipar í skálina eftir smekk og hrærið í blöndunni.
4. Skerið kjúklingabringuna í sneiðar og kryddið sitthvora hliðina með salti og creola kryddi.
5. Kveikið á grillinu og pennslið grillið með olíu þar sem þið munið grilla kjúklinginn.
6. Setjið blönduna í skálinni ofan í grill skál eða á grillpönnu. Eflaust alveg eins gott ef sett er á venjulega pönnu. Grillið eða steikið þar til ykkur finnst það vera klárt.
7. Dreifið kjúklinginum á grillið og grillið báðum megin þar til kjúklingurinn er hvítur í gegn.
8. Takið grænmetið og kjúklinginn af grillinu og slökkvið setjið tortillurnar á grillið. Hitið í örlitla stund sitt hvorum megin.
9. Setjið rifinn ost, kál, sýrðan rjóma og salsa sósu í skálar.
10. Gott er t.d. að smyrja sýrðum rjóma fyrst á kökuna, setja svo kál, kjúkling, papriku og lauk blönduna, salsa sósu og ost og rúlla upp.

Enjoy! ;) 

Thursday, January 23, 2014

Leiðin að framtakssemi

Ég þurfti ... já ég þurfti ... að lesa rannsóknir áðan fyrir skólann. Ástæðan fyrir því að ég segi "þurfti" er sú að ég hef því miður ekki gaman af því að lesa rannsóknir um eitthvað sem ég hef ekki áhuga á. Þessar rannsóknir fjalla yfirleitt ekki um eitthvað sem tengist náminu mínu endilega þar sem þetta er áfangi sem ég er að taka í hvernig eigi að framkvæma rannsóknir o.s.frv. Mér til mikillrar ánægju var þó ein rannsóknin sem vakti áhuga minn en samkvæmt henni leiðir hamingja til meiri framtakssemi.

Þetta "meikar" að sjálfsögðu "sens". Ef manni líður illa þá verður manni akkurat ekkert úr verki og einbeitningin fer. Ef manni líður vel og er hamingjusamur þá eru öll verkefni miklu yfirstíganlegri og skemmtilegri að framkvæma þar sem maður er jákvæður og væntanlega fullkomlega heilsuhraustur bæði andlega og líkamlega.



Hér má finna góða grein um efnið.

Fyrir þá sem ekki nenna að lesa greinina þá fjallar höfundurinn um það að fólk sem nýtur þess sem það gerir er miklu framtakssamari en þeir sem hafa ekki ástríðu fyrir vinnunni sinni. Dæmi um þetta er þegar þér finnst þú einungis hafa unnið í einhverju verkefni í nokkrar mínútur en þegar þú lítur á klukkuna þá ertu búin að vera niðursokkinn í verkefninu í marga klukkustundir.

Þetta minnir mig nú svolítið á þegar ég lærði lögfræði á Bifröst og var stödd í skattaréttarprófi. Þetta var verklegt próf, ekki munnlegt, sem þýðir það að við vorum að reikna skatta í excel skjali. Nema það að ég hef listrænt eðli í mér og finnst fátt jafn gaman og að gera Excel skjal fallegt. Hvað gerðist í þessu prófi - jú próftíminn rann út án þess að ég fattaði það þar sem ég var að skreyta einn hluta af verkefninu sem gerði það að verkum að ég náði ekki að klára hina hlutana - úppz. Ég hefði mátt segja sjálfri mér það þarna að lögfræði var kannski ekki alveg málið fyrir mig, en sem betur fer var afar hreinskilið fólk í lífi mínu þegar ég var á leiðinni í masters nám í lögfræði, sem greinilega þekkti mig og mína kosti betur en ég sjálf.

Ef maður hefur ekki gaman af því sem maður er að gera er maður betur settur annarsstaðar. Ég hlustaði á gott viðtal við hann Jack Welch þar sem hann fjallar um "The Welch Way". Hann flokkar starfsfólkið sitt upp í þrjá flokka:

A fólkið (toppurinn - 20% af starfsfólkinu)
B fólkið (miðjan - 70% af starfsfólkinu)
C fólkið (botninn - 10% af starfsfólkinu)

Hann segir að C fólkið sé það fólk sem á að losa sig við, það hefur enga ánægju af starfinu sínu, það er óhamingjusamt í starfi og mun aldrei verða ánægt. Það besta sem þú gerir fyrir fyrirtækið og fólkið sjálft er að láta það fara. Það mun hugsanlega blómstra annarsstaðar!

Ég er sammála honum, ég hef lært það í gegnum tíðina að ef fólk er óánægt og neikvætt í starfi þá er þetta ekki rétta starfið fyrir fólk og það mun aldrei sýna góða frammistöðu. Þarna get ég tekið gott dæmi með sjálfa mig. Ég hélt að ég væri sú týpa sem gæti unnið öll störf og alltaf verið sátt og ánægð nema að það reyndist ekki vera rétt. Ég ákvað að taka við starfi sem umsjónarkennari í 6. og 7. bekk og stærðfræðikennari í 4. og 5. bekk. Ég hef sjaldan eða aldrei verið jafn þreytt á ævinni. Þó vinnutíminn var styttri en því sem ég hef vanist þá þurfti ég þann tíma sem eftir var til að taka smá kríu eftir vinnu. Þetta starf gerði mig svo þreytta í einkalífinu líka að ég gerði fátt annað en að sofa. Eftir þessa reynslu mína mun ég aldrei fara aftur í starf sem ég veit að ég mun ekki vera sátt í. Eftir þetta bar ég líka endalausa virðingu fyrir kennurum - þetta er ekki auðvelt starf! 

Líkt og kom fram í inngangi greinarinnar þá finnst mér ekki gaman að lesa rannsóknir nema þær fjalli um eitthvað sem mér finnst áhugavert. Hvað gerist þegar ég hef ekki áhugann - ég dett út - les margar blaðsíður og vakna við það að ég veit ekkert hvað ég er búin að vera lesa = tíminn fór gjörsamlega í vaskinn og framleiðnin var engin.

Jæja þetta er orðið gott - munum bara hamingja = framtakssemi! :)

Tuesday, January 21, 2014

Krafturinn í möndluolíunni

Ég var einu sinni algjörlega "húkt" á þættinum Doctors ... gjörsamlega elskaði að hafa lítið annað að gera en að horfa á morgundagskrá stöðvar 2 með kaffibolla í höndinni og enn í náttfötunum. Nú er tíðin önnur og í einu skiptin sem þetta gerist í dag þá er ég í sumarfríi og upp í bústað og þokkalega í náttfötunum með kaffibollann í höndinni. Ég er ekki frá því að ég sé að missa af heilmiklu þar sem að það er alveg hreint ótrúlegt hvað það eru margir fróðleiksmolar í þessum þáttum! :) 

En allavega, eitt af því sem vakti áhuga minn í þessum þáttum var þegar þeir töluðu um möndluolíu. Í þeim þætti var talað um að nota megi möndluolíuna undir augun til að fjarlægja bauga. Ég var ekki lengi að hlaupa út í Jurtaapótek og kaupa möndluolíu.



Ég nota hana í dag ekki einungis undir augun þegar mér finnst ég vera eitthvað þreytuleg heldur nota ég hana í staðinn fyrir augnkrem! Nú heyri ég alla snyrtifræðinga og förðunarfræðinga ópa í kór yfir því hversu heimskulegt það er en mér er alveg sama, mér finnst þetta virka enda ekki enn komin með neinar hrukkur í kringum augun. Ég trúi því þó að þar spili genin eitthvað inn í en ég get samt ekki ímyndað mér annað en að þetta feit olía smyrji vel ofan í fínu línurnar hjá augunum. Ég nota han líka á þurra bletti í andlitinu og á hendurnar á kvöldin í stað handáburðar. Eftir að ég fór að nota hana aftur finnst mér eins og naglaböndin séu ekki jafn slitin og neglurnar sterkari.

Ég google-aði aðeins um möndluolíuna til að athuga hvort eitthvað af þessu "meikar sens" og komst að eftirfarandi:

- Hún er mjög mýkjandi og nærir vel húðina.
- Hún inniheldur A, E og D vítamín og er því mjög góð fyrir húðina.
- Hún hefur róandi áhrif og því góð á exem og ofnæmi.
- Góð sem nuddolía.
- Hún hefur lýsandi áhrif á þann hátt að hún lýsir upp dökka bletti í húðinni, líkt og ójafnt litarhaft og bauga.
- Hún dregur úr hrukkum.
- Hægt að nota á húð sem hefur farið illa úr bruna (væntanlega vegna róandi áhrifa og að hún gefur góðan raka).
- Hægt er að nota hana í skrúbba, á bólur, sem andlitskrem, sem augnkrem (yes!), fyrir húðslit og til að hreinsa af förðun.
- Það er líka hægt að nota hana í hár þar sem hún stuðlar að hárvexti, styrkir hárið og mýkir enda. Hægt er að nudda henni í hársvörðin ef flösuvandamál er til staðar og dregur líka þannig úr hárlosi.

Þar hafið þið það! Mæli með að þið kaupið ykkur eitt stykki, kostar ekki nema einhverjar 1.300 eða 1.400 kr. :) 

Sunday, January 19, 2014

101 listi

Jæja ég settist loksins niður og gerði 101 lista, nema að ég er nú ekki alveg komin með 101 atriði á hann :) En hann er núna orðin vel lifandi og hangir upp á veggnum mínum, tilbúin í að ég skrái fleiri atriði á sig.


101 listinn virkar þannig að þið skráið niður 101 atriði sem þið ætlið annað hvort að eignast, gera eða verða í lífinu. Þegar listinn inniheldur loksins 101 atriði þá skráist ekkert á hann í viðbót fyrr en eitthvað af þessu markmiðum er náð og þá bætist nýtt við.




Þessi hérna er þegar kominn á listann og hlakka ég til mánudagsins í næstu viku þegar ég byrja á að vinna eftir henni :) Næstkomandi vika fer í að undirbúa mig undir miklar breytingar.


Mæli með að allir útbúi svona lista - gott að hafa markmiðin hangandi fyrir framan sig :) 


Thursday, January 16, 2014

Breytingastjórnun í einkalífinu

Mér finnst svo gaman í skólanum - ég er lokins búin að finna mér nám sem ég virkilega hef áhuga á. Eflaust er helling af öðru námi sem ég hef áhuga á en þetta er algjörlega málið núna. Það sem er skemmtilegast við námið er að það er ekki bara að gagnast mér í vinnu heldur líka í einkalífinu.

Ég fór í tíma í gær í breytingastjórnun og á meðan ég hlustaði á kennarann tala um 8 skref Kotters að breytingum var ég alltaf með hugann við vinnuna og hvernig ég gæti nýtt mér þessi skref þar... Þar til ég kom heim um kvöldið þá fattaði ég það að auðvitað þyrfti maður að nota slíka aðferðarfræði líka þegar maður vinnur að breytingum í lífi sínu.

Í fyrirtæki er ekki nóg að segja bara "Hey gerum þessa breytingu" og svo bara á það að gerast! Líkt og þegar maður setur sér eitthvað markmið, segjum til dæmis markmiðið að vakna kl. 6 á morgnanna, er þá virkilega nóg að stilla bara klukkuna klukkan 6 og vonast til þess að maður ýti ekki á snooze takkann í það skiptið? Kannski eru margir sem eru svo harðir af sér, en ég er ekki ein af þeim, engan veginn. Ég þarf augljóslega að nota breytingastjórnun inn í mitt líf þegar ég set mér markmið.

Ég fór á góðan fyrirlestur með Vilborgu Örnu um daginn hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum. Þegar ég hugsa núna tilbaka, þá átta ég mig á því að hún ákvað ekki bara "jæja, ég ætla að skella mér á Suðurpólinn í nóvember" og fór og keypti sér miða. Heldur setti hún upp áætlun um það hvernig hún ætti að ná þessu markmiði og tók þetta skref fyrir skref þar til hún loksins komst á leiðarenda.

Í gær fór ég til læknis og labbaði þaðan út með enn aðra "sjúkdómsgreininguna" og tilheyrandi lyfseðlum við þessum vandamálum. Jú ég var ánægð að vita að þetta var ekki allt í heilanum á mér en ég nenni ekki einhverri lyfjainntöku og leiðindum. Í gær var ég að spjalla við vin minn og sagði honum frá þessari heimsókn. Hann skoraði á mig að breyta lífsstílnum mínum með tilheyrandi matarræði sem væri skipt í áfanga. Fyrsti mánuðurinn er víst erfiðastur en svo bætist alltaf meira og meira við með hverjum áfanga. Hann hefur áður skorað á mig að fara út í þetta en ég alltaf einhvern vegin hundsað þetta. Hann náði svo að sannfæra mig á endanum þegar hann sagði við mig "ég og kona mín vorum á þessu og Eva ég er að segja þér það við vorum með endlausa orku". Jáááá... orka! Það er eitthvað sem ég þarf inn í líf mitt til að meika 100% vinnu, fimleikaþjálfun, þrjú fög í skólanum sem teljast 18 einingar, æfingar og svo framvegis og svo framvegis. Þannig að endanum sagði ég:

"Challange accapted!"

Jæja það er nú ekki nóg að bara segja það, nú þarf ég að fara út í áætlanir, aðgerðir og halda mig við efnið. Ég mun byrja 1. febrúar.



Samkvæmt líkani Dr. John Kotter eru 8 skref að breytingum.

1. skref - Upplýstu þörfina og búðu til nauðsyn
Í fyrirtæki væri þetta þannig að þú þarft að upplýsa starfsmennina um það af hverju það þarf að breyta einhverjum ákveðnum hlut þannig að þeir trúi því að breytingarnar séu nauðsynlegar.

Ef við útfærum þetta yfir á einkalífið þá þarft ÉG að upplýsa SJÁLFA MIG um það af hverju hlutirnir þurfa að breytast. Ég þarf að horfast í augu við vandamálið og sannfæra sjálfa mig um að þetta sé hlutur sem þarf að breytast.

Ég þarf orku! Ég þarf að losa mig við eða deyfa niður vefjagigt og hennar fylgikvilla og nýjasta nýtt: vélindabakflæði og astma. Það mun ekkert breytast ef ég held áfram á sömu braut, þó ég sé nú yfirleitt frekar holl hvað varðar matarræði og hreyfi mig töluvert, en það er ekki nóg. Því ákvað ég að taka þessari áskorun, ég þarf orkuna og mig langar til að verða verkjalaus. Þetta er nauðsynlegt svo mér muni líða vel í sál og líkama.

2. skref - Búðu til hóp lykilstarfsmanna
Í fyrirtæki virkar þetta þannig að þú færð með þér í hóp lykilstarfsmenn sem hjálpa þér að innleiða þessar breytingar. Þetta fólk er áhrifafólk sem talar við sitt samstarfsfólk um hversu góð t.d. hugmyndin er og hjálpar þér svo að útfæra hugmyndina betur.

Þegar kemur að einkalífinu og þínum breytingum þá geturu í þessu tilviki safnað í kringum þig fólki sem hjálpar þér að ná markmiði þínu og talar þig til þegar þú ert við það að gefast upp. Ekki umgangast fólk sem hefur ekki góð áhrif á þig og reynir að draga úr þér. Safnaðu í kringum þig fólk sem styður þig og peppar þig upp til þess að ná markmiði þínu!

3. skref - Þróaðu framtíðarsýnina
Í fyrirtæki þarf alltaf að horfa til framtíðar þegar breytingar eru gerðar. Hvert stefnir fyrirtækið, hvar viljum við vera í framtíðinni hvað þessar breytingar varðar? Hér þarf að fara í stefnumótunarvinnu.

Í einkalífinu er þetta nákvæmlega sama málið. Hvernig viltu sjá þig að lokum, heilsuhrausta og fullan af orku? Já akkurat. Hvernig ætla ég að ná því markmiði? Jú með því að setja niður stefnumótun að markmiðinu. Það þarf að hugsa út í hvert einasta smáatriði sem gæti komið upp og setja þarf niður gott skipulag.

4. skref - Upplýstu um framtíðina
Í fyrirtæki þarf sá sem stjórnar breytingunum að vera viss um það að flestir starfsmenn skilji sig og samþykki framtíðarsýnina og stefnumótunina.

Í einkalífinu er mjög gott að láta sem flesta vita að því í hverju þú ert að vinna. Ég mun til að mynda upplýsa þá sem eru í kringum mig (og er að því núna) að þetta er það sem ég er að fara út í og af hverju ég er að gera þetta. Með þessu er ég að hindra það að fólk t.d. reyni að selja mér hugmyndina um eitthvað gourmet fæði og drykki.

5. skref - Taktu á andstöðu og gerðu áætlun
Í fyrirtæki þarf að fjarlægja allar hugsanlegar hindranir sem koma í veg fyrir breytingarnar. Það þarf að breyta kerfum og þeim strúktúrum sem ekki styðja þessa framtíðarsýn. Hér þarf að stuðla að smá áhættutöku sem brýtur upp föst norm, ákveðnar hugmyndir og aðgerðir.

Pizzakvöld á föstudögum, vinnudjamm, afmælisboð - þetta eru hindranir. Það þarf kannski ekki alveg að fjarlægja þessar hindranir, bara ekki taka þátt í þeim ósiðum sem þeim fylgja ;) Það er hægt að segja nei, þó að normið segji já... Ef breytingar eiga að gerast, þá þarf að gera hlutina öðruvísi. Fjarlægðu líka fólkið tímabundið sem finnst þetta bara vitleysa í þér og er ekki að hjálpa þér við breytingarnar.

6. skref - Búðu til áfangasigra
Það þarf að passa upp á að fagna öllum áföngum þó þeir séu litlir. Þetta heldur verkefninu lifandi og fólk áttar sig á því að vissum áföngum hefur verið náð. Verðlaunaðu þeim sem standa í verkefninu með þér.

Fyrirtæki gætu t.d. boðið upp á pizzuveizlu þegar einum áfanga er náð og verðlaunað starfsmönnum með einhverju lítilræði við hvern áfanga. Þegar lokaáfangum er náð er t.d. haldið eitt stykki feitt partý!

Í einkalífinu er þetta nákvæmlega eins. Eftir fyrsta áfanga væri t.d. hægt að gefa sjálfum sér nudd. Í næsta áfanga geturu keypt þér eitthvað fallegt. Þegar lokaáfanganum er náð gefuru sjálfum þér einhverja góða gjöf! Ekki væri slæmt að gefa þeim sem stóðu við bakið á þér eitthvað skemmtilegt eða fallegt.

7. skref - Hafðu úthald
Þó áföngunum er náð - ekki loka augunum ef upp kemur ný og betri sýn. Fáðu með þér, þróaðu og efldu starfsmenn sem geta hjálpað þér að klára verkefnið. Vertu opin fyrir nýjum hugmyndum varðandi breytingarnar, upp geta sprottið ný verkefni í kringum það fyrsta og nýtt fólk.

Þegar breytingar eru gerðar í einkalífinu er nauðsynlegt að hafa úthald til þess að klára markmiðin. En þegar þeim áfanga er náð gæti vel verið að upp komi eitthvað nýtt og betra - ekki loka augunum fyrir því.

8. skref - Festu nýbreytnina í sessi
Það er ekki nóg að breyta, það þarf að halda breytingunum inn í lífinu, ekki fara tilbaka í það hvernig hlutirnir voru. Í fyrirtæki þarf að halda starfsfólkinu við efnið og kenna þeim að lifa með breytingunum. Það þarf að búa til nýja hegðun og tengja hana við velgengni fyrirtækisins. Það þarf að þróa aðferðir til að tryggja að breytingarnar skilji áætluðum ávinningi.

Hverjir kannast ekki við það að hafa verið ógeðslega duglegir og náð geðveikum árangri og svo þegar það er búið þá er bara farið aftur í sama farið. Þetta má ekki gerast. Þetta er nýr, betri og breyttari lífsstíll, til hvers að fara tilbaka þegar þessum árangri er náð. Hugsaðu um líkama þinn og sál sem fyrirtæki, aldrei myndi fyrirtæki ákveða allt í einu: "YES, við náðum að koma þessu í gegn og vá hvað okkur gengur vel ... en æjjj hitt var bara svo eitthvað þægilegt og gott, þó okkur hafi gengið illa, hvað um það ... förum frekar bara aftur í gamla farið og aftur í sama tapið!"

Nei, nei - líkami okkar er musteri sálarinnar. Förum vel með hann og festum nýbreytnina í sessi.

- þar til seinna!

Einföld hollari pizza með kjúlla áleggi

Okey ég veit nú ekki alveg hvort það sé hægt að setja þetta inn sem uppskrift, en ég set þetta inn þar sem mér finnst þetta svo afskaplega þægilegur réttur sem tekur enga stund! Ég geri þennan rétt oft þegar ég er með craving í pizzu og þegar ég hef lítinn tíma.

Ég merki réttinn þó ekki sem hollusturétt þar sem að osturinn og olían er kannski aðeins of mikið af því góða ;) 


Hráefni
1 tortilla kaka (helst spelt eða heilhveiti til að hafa þetta hollara)
3 x kjúklingaálegg
Extra virgin ólivíu olía
Ostur
Heitt pizzakrydd
Pizzasósa

Aðferð
1. Stillið ofnin ykkar á grill og í hæsta hita (eða grilli líka þar)
2. Setjið kökuna á plötu og inn í ofn og bíðið þar til hún byrjar að bólgna smá upp. Snúið henni þá á hina hliðina og gerið það sama.
3. Skerið kjúklingaáleggið í strimla á meðan.
4. Takið pizzuna út, setjið pizzasósu á og dreifið kjúklingaskinkunni yfir. Kryddið með heitu pizzakryddi. Setjið svo ostinn á, skvettið olíunni yfir og aftur heitt pizzakrydd.
5. Setjið aftur inn í ofninn þar til osturinn er vel bráðinn.

Tuesday, January 14, 2014

Mexíkóskar fiskibollur í heilhveitpastabeði

Ég var ekkert lítið lengi að ákveða eitthvað sniðugt nafn á þennan rétt sem ég útbjó mér í kvöld þar sem hann hljómar eflaust mjög furðulega, en mikið kom hann mér á óvart. Ég ákvað að henda uppskriftinni inn á meðan ég man hana.

Bollurnar duga alveg í þrjá rétti eða þrjú skipti fyrir eina manneskju.


Hráefni
1 laukur
3 rif hvítlaukur
4 litlir ýsubitar
1 tómatur
1 egg
2 lúkur af klettasalati
Lúka af spínati
Salt
Pipar
Heitt pizzakrydd
Extra virgin olive oil
Salsa sósa
Heilhveiti penne pasta
Rifinn ostur

Aðferð
1. Laukurinn, hvítlaukurinn, tómaturinn, fiskurinn, ein lúka af klettasalati, spínatið og eggið er allt sett saman í matvinnsluvél. Kryddið með salti, pipar og heitu pizzakryddi eftir smekk. Ég hef eflaust sett ca. 1/2 tsk. af grófu salti, 1/4 af pipar og 1/2 af heitu pizzakryddi. Blandið öllu saman þar til þetta er orðin góð blanda.

2. Sjóðið heilhveiti penne pasta.

3. Hitið olíuna á pönnu og notið skeið til þess að láta deigið á pönnuna. steikið þar til hliðin sem vísar niður er orðin dökk. Snúið bollunum við og gerið slíkt hið sama þar.

4. Setjið klettasalat á disk.

5. Blandið heitri salsasósu við pastaskammtinn sem fer á diskinn og setjið svo pastablönduna ofan á klettasalatið.

6. Raðið bollunum ofan á pasta-ið. Setjið smá salsasóu ofan á bollurnar og stráið svo mozzarella osti yfir.


Ég er nokkuð viss um að það sé alveg eins gott að borða þetta með t.d. heilhveiti grjónum eða einhverju slíku fyrir þá sem eru t.d. ekki að borða glútein.

:) 

Monday, January 13, 2014

Góðir hlutir gerast hægt...

Ég er ekki alveg týpan sem lifi eftir ofangreindu mottói en það hljómar vel og það hljómar enn betur að reyna lifa eftir þessu mottó-i þetta árið.

Ég ætla mér alltaf svo mikið þegar ég set mér einhver markmið og ætla mér líka alltaf að ná þeim öllum á "no time", en svo næ ég þeim ekki og þá verð ég pirruð og gefst upp. 

Líkt og áður hefur komið fram ákvað ég að byrja árið á fyrsta verkefninu sem var að hugsa um og næra líkama og sál. Ég get nú ekki sagt að fyrstu vikuna hafi ég verið einhver fyrirmyndarmanneskja í þessu en ég náði þó allavega að stíga nokkur skref í rétta áttina. 

Næringar- og orkumikill matur
Virku dagarnir voru stútfullir af slíkum mat. Ég borðaði mikið af ávöxtum, grænmeti, eggjum, kjúlla og fisk. Helgin var því miður ekki þannig né afmælisdagurinn hans Guðmundar Hrafns.

Fyrsta sem ég gerði alla morgna var að fá mér skot af eplaediki sem ég þynnti út í vatn. Því næst reyni ég alltaf að fá mér sítrónu vatn úr heillri sítrónu og svo grænt epli.

Alltaf boozt í eftirmiðdagskaffi

Hollur og góður hádegis- og kvöldmatur

Að leyfa sér að hvílast
Því miður var ekki mikil hvíld í gangi þar sem næturnar voru frekar svefnlausar sökum bakverkja EN ég fór í nudd og ég bjó mér til skrúbb! 

Skemmtileg hreyfing
Annasöm vika þar sem skólinn byrjaði aftur en ég náði þó að koma þarna inn einni fimleikaæfingu, göngum, teygjum og smá dansi! Veit þó ekki hversu heilsusamleg hreyfing skemmtistaðardans er... En pottþétt betri en að sitja á rassinum, það er á hreinu! ;) 

Fergurð
Ég naut einstakrar fegurðar í mat, göngum og í kertaljósum ;)







Að eyða tíma með mínum nánustu
Ég afrekaði þó að eiga yndislegar stundir með mínum nánustu. Bróðir minn varð 25 ára síðasta þriðjudag og var þriggja rétta matarboð í tilefni þess. Ég átti góða stund með Báru vinkonu á föstudagskvöldið. Ég fór með mömmu og pabba út að borða á Ítalíu í hádeginu á laugardaginn en pabbi átti afmæli á föstudaginn og fór mamma því með kallinn í borgarferð. Ég fór í afmælispartý hjá bróður mínum á laugardaginn og átti góðar stundir með þeim hjúum og Atla Dag frænda. Vikuna endaði ég á því að bjóða ömmunum mínum, mömmu, Rósu systur og Bubbu systur mömmu út að borða á Italiano og svo í lúxus salinn í Smárabíó á bíómyndina "The Secret Life of Walter Mitty". Vikan gat ekki endað betur, myndin var æði og ömmurnar mínar voru eitthvað svo hamingjusamar og sáttar með jólagjöfina sína enda hafa þær ekki farið í bíó (og hvað þá lúxus bíó) í nokkra áratugi.










Eigið yndislega viku kæru vinir :) Vikan mín byrjaði vel, skellti mér loksins aftur til kíró! Reyndar flaug ég á rassinn eftir að ég kom út frá honum... en hvað um það, hann smellir mér aftur í lið á morgun!

Gullkorn dagsins
"Hvað er hamingja annað en að vera sjálfum sér samkvæmur? Krefjast ernir gullfjaðra? Óska ljón sér klóa úr silfri?"

Tropical möndlumjólkur boozt

Ég gjörsamlega ELSKA þetta boozt og fæ mér það nánast daglega. 

Það er eitthvað svo jummí!



Hráefni
250 ml. möndlumjólk
1 frosinn banani
Nokkrir bitar frosinn ananas
Nokkrir bitar frosið mangó
Ca. 100 ml. vatn

Aðferð
Mixið öllu saman ;) 

Staðreyndir um innihaldið
Möndlumjólkin er próteinrík, járn og kalkmikil. Möndlur innihalda holla og góða fitu.

Bananar innihalda t.a.m. góð steinefni líkt og kalíum, þeir innihalda B vítamín, járn, potassium og fleira. Hér er áhugaverð grein um hvernig bananar geti haft góð áhrif á hina ýmsu kvilla.

Ananas inniheldur t.a.m. C vítamín og brómelín. Ananas getur verið góður ef konur þjást af fyrirtíðarspennu.

Mangó er mjög vítamínríkt og inniheldur jafnframt hin ýmsu steinefni.

Thursday, January 9, 2014

Ýsu ommeletta með spænsku ívafi

Ég eldaði mér áðan hinn ágætasta ýsurétt og ákvað að drífa í að setja uppskriftina inn á meðan ég man hana ennþá. Ég er engin fiskimanneskja og ekki mikið í því að útbúa fiskirétti en þar sem ég er að reyna borða næringaríkari mat þá neyddist ég til þess rétt áðan og útkoman var bara ansi fín. Það besta var hversu stuttan tíma það tók að útbúa réttinn. Eins og venjulega var ég bara reyna nota það sem var til í ísskápnum mínum, en ég er á því að þá koma oft bestu uppskriftirnar. Eftirfarandi uppskrift miðast við eina manneskju og því er bara hægt að margfalda hana með þeim fjölda sem eldað er fyrir.



Hráefni
Eitt stykki ýsubiti
1 msk ca. extra virgin olive oil
Gróft salt (ég notaði rock salt sem var "grindað")
2 tómatar
2 hvítlauksgeirar
1/4 af stórri papriku
Lúka af spínati
Lúka af klettasalati
1 egg (notaði brúnegg)
Rifinn mozzarella ostur
Klettasalat til skreytingar

Aðferð
1. Saxið niður hvítlaukinn.
2. Hitið olíuna á hæðsta hita.
3. Skerið tómatana og paprikuna niður í bita.
4. Setjið hvítlaukinn, tómatana og paprikuna á pönnuna.
5. Saltið eftir smekk.
6. Bætið við lúku af spínati og lúku af klettasalati.
7. Þegar þetta er búið að malla í smá stund (ca. 2 mínútur), setjið þá egg í skál og sláið með gaffli og hellið svo út í blönduna.
8. Leyfið blöndunni að malla í ca. 2 - 3 mín.
9. Saltið fiskstykkið báðum megin og setjið það ofan á blönduna. Leyfið stykkinu að standa ofan á blöndunni (á pönnunni) í ca. 2 mín.
10. Snúið stykkinu við og vefjið hliðunum af blöndunni yfir steiktu hliðina. Leyfið þessu að eldast svona í ca. 2 mín.
11. Stráið mozzarellaostinum yfir.
12. Setjið klettasalat á disk.
13. Takið fiskinn af pönnunni og færið yfir á diskinn.

Njótið vel ;) 


Heimatilbúinn andlits- og líkamsskrúbbur

Ég er ein af þeim sem er með ofboðslega viðkvæma húð og þoli því mjög fá krem og engar hreinsivörur án þess að fá exem og ofnæmi.

Vegna þessa nota ég t.a.m. kókosolíu mikið til að hreinsa af mér farða og bý mér oft til heimatilbúinn skrúbb.

Ég hef notað þennan frekar mikið og finnst hann rosalega góður. Mig minnir að ég hafi heyrt að hluta til um undirstöðuna í þættinum Doctors fyrir einhverju síðan en hef svo prófað að fikra mig aðeins áfram í þessu.



Uppskrift
1 dl. haframjöl 
(mýkjandi, rakagefandi, hreinsandi og fjarlægir dauðar húðfrumur)
1/2 sítróna 
(dregur úr rauðum blettum, örum og bólum og minnkar fitu í húð)
4 msk hunang 
(góð vörn gegn bólum, góð vörn gegn öldrun þar sem það er fullt af andoxunarefnum, rakagefandi og róandi fyrir húðina)
1/2 tsk kanill 
(eyðir olíu í húð, eykur blóðflæði, drepur sýkingar)

Aðferð
Sítrónan er kreist og safinn af henni settur í skál. Haframjölinu er bætt út í og þessu blandað saman. Leyfið blöndunni að standa í ca. mínútu. Bætið svo við hunangi og kanil og blandið öllu saman. Setjið svo í krukku.

Geymslan á þessu er pottþétt betri ef blandan er geymd í ísskáp en annars hefur hún alveg dugað í nokkuð langan tíma án þess að vera inn í ísskáp hjá mér.

Wednesday, January 8, 2014

Að hugsa um líkama og sál

- Taking care of your body and soul, seek meaning and purpose, meditation -

Þegar ég var í skólanum voru verkefnin sett upp sem vikuverkefni en ástæðan fyrir því að ég ákvað að byrja á þessu verkefni er vegna þess að þetta verður mitt ársverkefni.

Hvernig skal fara að þessu? Kennarinn okkar benti okkur á eftirfarandi atriði.

Borðaðu góðan mat sem gefur orku


Ég var alveg búin að gíra mig upp í viku af detoxi, ofur æfingum o.s.frv. líkt og öfgi eins og ég á það til að gera, þar til ég mundi að ég var búin að setja mér það markmið að hætta öllum öfgum. Af hverju? Því ef ég fer út í öfga þá gefst ég fyrr eða síðar upp, plús að það getur ekki verið hollt fyrir sálina né líkamann.

Líkaminn ákvað augljóslega að hann væri búin að fá meira en nóg af sukkinu og hreyfingarleysinu, þar sem að ég fór inn í nýja árið í veikindum og lá heima veik allan mánudaginn - daginn sem ég ætlaði að byrja á öllum öfgunum. Spurning hvort líkaminn hafi verið að segja mér eitthvað? 

Ég ákvað því að taka hlutina rólega svona til tilbreytingar. Eina breytingin sem ég gerði í þessari viku var að taka ger út úr matarræðinu og þegar ég er tilbúin tek ég það næsta út. Planið er að losa mig við allt sem heitir ger, hvítur sykur, hvítt hveiti, hvít grjón, unnar vörur o.s.frv. eða að borða sem náttúrlegastan og eins óunnin mat og ég get. Þetta mun þó ekki gerast á einum sólarhringi, það hef ég lært af lexíunni.

Eplaedik, nýkreistur sítrónusafi, lýsi, hörfræolía, d vítamín, omega-3, B vítamín, járn, zynk, magnesíum og kalk, grænmeti, egg, kjúklingur, grænt epli og nóg af vatni hefur þó fengið að líta dagsins ljós aftur og tilheyrir aftur dagsrútínunni. Mér líður strax betur!


Stundaðu skemmtilega hreyfingu


Ég fór loksins á æfingu í dag en ég hef verið í fríi frá því fyrir jól - líkaminn fékk alveg að finna fyrir því. Fyrir mér er skemmtileg hreyfing að henda mér upp í Gerplu á fimleikaæfingu, fara út að hlaupa eða í göngu. Planið er að reyna koma mér á fætur í morgunsárið og hefja daginn á göngu eða skokki og góðum teygjum. Í það minnsta mun ég hér eftir hreyfa mig að lágmarki í 20 mínútur á dag.


Leyfðu þér að hvílast og náðu upp orku


Svefn skiptir svo miklu máli. Vegna mikillra bakverkja undanfarið hef ég lítið getað sofið en eftir snilldar nudd í dag, góða æfingu og góðar teygjur trúi ég ekki öðru en að ég muni sofa vel í nótt :) Ég held meira að segja að ég panti mér bara tíma hjá kírópraktornum mínum á morgun! Bara það að hugleiða eða loka augunum í 10 mínútur getur gert helling fyrir mann til að endurnærast og ná upp orku.


Njóttu fegurðar
T.d. fallegrar náttúru, listar, hluta, fatnaðar og matar.

Ljósmynd: Gísli Kristinsson



Þegar ég gekk í gegnum þessa viku í haust þá smellti ég yfirleitt á mig rauðum varalit á hverjum degi, valdi fötin af kostgæfni, slökkti á fréttunum og hlustaði á góða tónlist í staðinn á leiðinni í vinnuna, naut útsýnisins og náttúrunnar og borðaði alltaf fallegan mat, þ.e. matar sem er fallega settur á disk og litríkur. Það þarf ekki meira til! Stoppaðu í smá stund og njóttu fegurðarinnar, hvernig sem hún er og hvar sem hana er að finna.


Eigðu stund með þínum nánustu


Mínir nánustu skipta mig mestu máli í lífi mínu og reyni ég að vera í kringum þau eins mikið og ég get. Ég veit ekki hvar ég væri án þeirra. Ef einhver getur gert mig hamingjusama og glaða, þá eru það einmitt mínir nánustu. Njóttu lífsins með þeim, gefðu þér tíma. Ef þú ert hamingjusöm/hamingjusamur þá færðu ósjálfrátt meiri orku.


Brostu og hlæðu


Það er ekkert betra en að fá harðsperrur í kinnarnar og magann út af því að maður hlær svo mikið og brosir svo breytt. Því miður er það í dag orðið of sjaldgæft. Ef maður velur fólk í kringum sig sem lætur manni líða vel og gleður mann, þá ætti þetta ekki að vera vandi. Hláturinn lengir lífið!


Að finna tilgang sinn og hugleiða


Hugleiðsluleiðbeiningarnar bíða spenntar eftir mér í veskinu mínu, vonandi tek ég þær upp einhvern tíman núna á næstunni og fer að stunda hana. Stefnan er jafnframt tekin á göngutúra þar sem maður getur leyft huganum aðeins að reika og gleymt sér í smá stund.

Njótið lífsins, það ætla ég mér að gera :) 


Saturday, January 4, 2014

The How of Happiness

Það hafa eflaust einhverjir vinir mínir á Facebook rekið augun á að ég hafi verið í rosalega góðum kúrs núna í haust hjá henni Árelíu Eydísi, en kúrsinn heitir Forysta og Leiðtoginn. Ég mæli með að allir sem eru skráðir í mastersnám í HÍ taki þennan kúrs, ég hefði tekið hann án eininga.

Ég fílaði þennan kúrs svo mikið þar sem að hún gefur manni svo mikið inspiration og hún kemur öllum kenningum og stjórnunarfræðum svo vel frá sér. Hún leyfði ekki tölvur í tímum heldur áttum við að vera með stílabók - fyrir vikið hlustaði maður betur. Eitt af verkefnunum í kúrsinum var að skrifa dagbók og í hverri viku fengum við verkefni í hendurnar og átti dagbókin að fjalla meðal annars um þessi verkefni. 

Þessi verkefni eru tekin úr bókinni "The How of Happiness" eftir Sonja Lyumbomirsky.



Skrefin eru 12:

1 – expressing gratitude, cultivating optimism and avoiting overthinking and social comparison
2 – investing in social connections, practising acts of kindness, nurturing social relationships
3 – managing stress, hardship and trauma, develop strategies for coping, learning to forgive
 4 – living in the present, increase flow, savoring life´s joy´s
5 – committing to your goals
6 – taking care of your body and your soul, seek meaning and purpose, meditation
7 – find positive meaning 
8 – savor goodness
9 – follow your passion
10 – dream about your future
11 – apply your strenghts 
12 – connect with nature

Ég var að fíla þetta í botn en náði samt ekki alveg að stíga skrefin til fulls og er eitt af áramótaheitum mínum að gera þessi verkefni að lífsstíl og fjalla m.a. um þau hér. 

Mér finnst tilvalið að byrja á skrefi nr. 6 þar sem ég er hálf ryðguð, bjúguð og slöpp eftir hátíðarnar, þannig að verkefni mitt í fyrstu viku prógramsins er að hugsa vel um líkama og sál, finna tilgang lífsins og að hugleiða.

Þar til seinna - stay tuned!

Friday, January 3, 2014

Jæja þá er komið að áramótaheitinu ... 

ég ætla að byrja blogga aftur! Og hvað er hentugra sem fyrsta færsla annað en yfirlit yfir árið 2013?

Það er frekar skrýtið að átta sig á því að árið 2013 var ekki bara sorg og erfiðleikar. Þegar ég hugsa um árið 2013 hef ég hingað til eingöngu hugsað um missirinn og sorgina sem ég upplifði þetta árið. Þegar ég loksins settist niður og fór að skoða myndir áttaði ég mig á því árið í heild sinni var ekki svo slæmt eftir allt saman. Það var líka gleði í árinu.

Stórir og merkir atburðir í lífi Halldóru minnar

Janúar byrjaði á mikillri gleði þar sem að hún Halldóra vinkona átti ótrúlega fallega stúlku með honum Benna sínum. Ég gjörsamlega féll fyrir henni.


Stúlkan hlaut hið fallega nafn Matthildur Ísey.



Ekki var sagan öll hjá henni Halldóru minni, heldur var hún gæsuð með prompi og prakt og sett í gervi Carrie Bradshaw.




Því næst giftist hún Benna sínum og var gestum boðið í ofboðslega fallega veislu sem haldin var í Bláa Lóninu. Ég samdi texta við lagið "Living next door to Alice" sem fjallaði um ferðarlag hennar og Benna. Það var nú ekki það eina heldur henti ég mér líka á sviðið með Mumma Hermanns og söng lagið undir hans undirspili. Mér til mikillrar ánægju er ekki til video af þessum atburði, eða ég vona ekki, þar sem ég er það sem eflaust má kalla hinu fallega orði FÖLSK. Sem betur fer studdu bræður hennar og mágkonur mig og komu upp á sviðið og sungu með. Bara snilld. Efast þó stórlega um að ég stígi einhvern tíman aftur á svið og syng.



Ferðarlög

Ferðalögin voru nokkuð mörg á þessu ári en þau voru aldrei þessu vant flest öll innanlands og megnið af þeim voru til Akureyrar. Í upphafi árs skellti ég mér til Akureyrar á Fótboltamót Fjármálafyrirtækja og tók að mér klappstýru hlutverkið og veitti þar með fyrirtækinu mínu stuðning. Ferðin fór þó aðallega í að skemmta mér með vinkonum mínum :) 


Vörður náði svo þeim merkilega áfanga að ná undir 100 í samsettu hlutfalli sem er mjög jákvætt og vilja öll tryggingafélög vera undir þessari tölu. Í tilefni þessara skemmtilegu frétta fórum við til Akureyrar í æðislega árshátíðarferð. Þar var ég svo heppin að vinna svítuna í happdrætti og að prófa vélsleða í fyrsta skipti á ævinni. Einstaklega skemmtileg ferð.




Sumarbústaðarferðirnar voru að sjálfsögðu margar líka og naut ég þeirra allra í einstaklega góðum félagsskap fjölskyldu og vina. Tími minn þar með honum afa mínum er algjörlega ómetanlegur.











Í júlí fórum við Eyrún og Bára til Krítar og áttum þar rosalega góðar stundir. Eftirminnilegast var þó Santorini ferðin okkar en ég hef sjaldan eða aldrei séð jafn mikla fegurð. Ég leyfi myndunum að lýsa öllu sem lýsa þarf.

















Um verzlunarmannahelgina skellti ég mér svo til Eyja ásamt fríðu föruneyti.





Og síðasta ferðarlag ársins var svo til Akureyrar, í þriðja skiptið á árinu, til að dæma á Haustmóti FSÍ. Ferðin var mjög skemmtileg og eyddi ég mest öllum laugardeginum í menningarrölt með henni Kristínu.




Að öðru leiti var sumrinu eytt í hittinga í hádegismat, eftir vinnu hittinga og svo á pallinum á Heiðarbrúninni.







Góð kaup á árinu!

Ég ákvað að vera góð við sjálfa mig og keypti mér draumabílinn, Volkwagen Beetle Design. Þessi bíll er enn í dag draumur og verður það í mörg ár í viðbót - alltaf gaman að kaupa sér eitthvað sem manni virkilega langar í. Ég afrekaði það í leiðinni að bóna í fyrsta skiptið á ævinni, geri aðrir betur! ;) hehe


Nýbónaður og fínn! ;) 

Ég verslaði mér svo loksins alvöru rúm og mæli ég sko með því að allir skelli sér í Svefn og Heilsu og versli sér eitt gott IQ Care rúm!

Hér er kannski ekki hægt að tala um kaup ársins, heldur meira leigu ársins. Ég sótti um í Háskólagarðana og komst inn og flutti í lok árs! Jibbí kóla! Leiga ársins þar sem það er frekar mikill munur á verði hjá þeim heldur en á leigumarkaðnum í Reykjavík.


Ég uppgötvaði frábæra hönnun hjá henni Rakel en hún hannar undir nafninu Afrodita.

Skólinn!

Ég útskrifaðist loksins úr Tryggingaskólanum í flottri útskrift frá HR í apríl. Þessi skóli var langt frá því að vera auðveldur og var því mjög mikill léttir þegar ég loksins kláraði, þar sem álagið var mjög mikið. Því var að sjálfsögðu fyrst fagnað með hópnum en við skelltum okkur á Grillmarkaðinn eftir útskriftina og svo fagnaði ég því líka með því að fara út að borða með vinkonunum á Caruso.


Ég hafði greinilega rosa gott af þessu þar sem að ég var varla búinn með skólann þegar ég sótti loksins um Masters nám í HÍ í Stjórnun og stefnumótun og fékk inngöngu. Því hóf ég skólagöngu mína núna í haust með 100% vinnu en ég varla finn fyrir því þar sem þetta er svo gaman! Þvílíkur munur að læra eitthvað sem maður hefur áhuga á, þar sem að ég get ekki sagt að ég hafi haft mikinn áhuga á lögfræðinni á sínum tíma.



Fimleikarnir!

Fimleikaárið mitt hófst á því að ég náði E landsdómararéttinum í áhaldafimleikum karla. Þetta þýðir að ég hef ekki eingöngu rétt til þess að dæma 2. - 6. þrep líkt og áður hefur verið heldur hef ég líka rétt til þess að dæma frádráttinn í 1. þrepi og frjálsum æfingum. Þar sem þetta er svo mikill frumskógur ákvað ég að bíða algjörlega með D dómararéttindin þar til betur stendur á en ég var mjög stolt af þessu þar sem ég er eini kvenmaðurinn með slík réttindi... ekki það að margar hafi reynt við þau, held að engin hafi reynt! haha... klikkaða Eva!

Fyrsta mótið sem ég dæmdi var Bikarmót 2013 og var mjög skemmtileg upplifun að dæma svona færa stráka.


Á árshátíð GGG vann ég fjöldan allan af medalíum - Evu verðlaunin m.a. !! Mér skilst þó að ég eigi alls ekki vera hreykin af Evu verðlaununum... skil samt ekkert í því ;) 


Ég hélt tvö partý á hóteli fyrir hópinn, geri aðrir betur! haha... Ég býst þó við því að ég sé ekki vinsæll gestur lengur.



Yndislegi hópurinn minn sem ég þjálfa í Gerplu keppti í sitt fyrsta skipti á Íslandsmóti og tóku svo jafnframt þátt í vorsýningunni líkt og þau hafa áður gert. Ef þessi hópur gefur lífi mínu ekki lit þá veit ég ekki hvað, ég er afskaplega þakklát fyrir að fá að þjálfa þennan hóp, þau eru yndisleg! 




Hlaupin!

Þó ég hafi ekki náð markmiði mínu fyrir árið 2013 með 1.000 km á árinu þá hljóp ég samt slatta en vantaði þó tæpa 150 km upp á. Það þýðir lítið að svekkja sig á því. Ég tók hinsvegar bara þátt í tveim hlaupum sem voru skráð. Fyrst hljóp ég 10 km með Báru í Suzuki hlaupinu.



Og svo tókum við stöllur þátt í hálfmaraþoni í Reykjavíkurmaraþoninu. Ég fékk því í fyrsta skipti hálfmaraþon skráð - annað en þegar ég var rammvillt árið 2012 í Berlín að hlaupa ein hálfmaraþon. Ég náði tímanum 2 klst. og 15 mín sem var akkurat markmiðið mitt en svo er bara að bæta sig á nýju ári.




Merkilegir viðburðir

Mörgu var fangað á nýju ári og var upphafið á þeim veislum níræðisafmæli Rúnu ömmu. Að hugsa sér, pant fá genin hennar!


Því næst var skotist í Garðabæ í rosa flotta útskriftarveislu hjá Ernu okkar.


Allar urðu æskuvinkonurnar þrítugar en eingöngu tvær héldu upp á þann atburð og var önnu þeirra Kristín Hjartar.

 

75 ára afmæli Höllu ömmu var haldið á Heiðarbrúninni góðu og var hennar nánasta mætt á svæðið til að fagna með henni.


Við Bifrastarvinkonurnar komum Silju á óvart og fórum með hana í óvissuferð til Selfossar. Hún vissi ekki af mér og Taníu fyrr en við skutumst út úr samliggjandi herbergi og önnur eins öskur hef ég sjaldan heyrt. Tilefnið var að sjálfsögðu þrítugsafmæli hennar.


Að lokum var það your's truely sem varð tuttuguogtíu... ;) Hélt ég upp á afmælið með suðrænu þema og miklu fjöri.




Ekki má þó gleyma brúðkaupsafmæli mömmu og pabba en þau eru búin að vera gift núna í 33 ár!


Mágkona! Jei!

Hann bróðir minn var svo góður að gefa mér yndislega mágkonu sem er sú myndarlegasta sem fyrir finnst. Hún Svava ekki bara eldar góðan mat heldur bakar hún út í eitt! Og ofan á allt þá er svo huggulegt heima hjá henni og hún er alveg með kósýlegheitin á hreinu. 



Að eiga góða að.

Sorgin dundi yfir okkur í ágúst og september þar sem tveir fallegustu menn jarðarinnar kvöddu þennan heim. Elsku besti Gulli afi minn og elsku Siggi frændi bróðir hans kvöddu okkur með stuttu millibili. Á tímum sem þessum áttar maður sig enn betur á því hvað það er gott að eiga góða að og að njóta þess að eyða tímanum með sínum nánustu. Ég lýk því færslunni á myndum af yndislegum mönnum og yndislegri fjölskyldu minni... og að sjálfsögðu frábæru hundunum sem gefa lífinu lit, þeim Gulla og Guðmundi sem einmitt eru skýrðir í höfuðið á mínum elskulegum öfum sem báðir eru fallnir frá.




Þessir komu haugaskítugir inn og skyldu ekkert í því að vera hent ofan í bað!
















 Ég gæti eflaust endlaust skrifað og sett inn myndir af liðnu ári en ég held að þetta sé orðið gott. Ég þakka ykkur innilega fyrir árið og vona að árið 2014 verði okkur öllum gæfuríkt og gott. 

Ykkar,
Eva Hrund