Monday, January 25, 2016

Just do it!


Jæja þá ... ég er enn á lífi ef einhver var að velta því fyrir sér :) Mér líður eins og ég hafi legið í dvala í smá stund og eftir að hafa frætt mig aðeins um það þá er ég alveg 100% viss um að það hafi verið málið....


1. Það hægist á efnaskiptunum
Klárlega, einhvern vegin bætti ég á mig ótalmörgum kíló-um á alltof stuttum tíma. Það var klárlega ekki út af æfingaleysi og áti!

2. Tengist óhagstæðu veðri og kulda þar sem að dýrin þurfa að geyma orku.
Uuuuuhhhh ég bý á Íslandi og er sólardýrkandi. Þannig að check!

3. Dýrin borða mikið magn af mat til þess að búa til orku sem varðveitist á meðan þau liggja í dvala.
Akkurat það sem ég gerði!

Eftir að hafa lesið ofangreind atriði var ég svo handviss í minni sök um að ég hafi legið í dvala að ég las ekki meir.

Í byrjun janúar ætlaði ég mér svo að sigrast á þessu dvalarástandi og setti niður ýmis markmið og áramótaheit ... ekki leið á löngu þar til að þau frestuðust um 1 viku hehehe... 

Ég setti mér þó nokkur áramótaheit sem ég ætla að greina frá hér en þau eru:
- Hlaupa heilt maraþon árið 2016 (ekki á Íslandi)
- Ekki kaupa neinn skyndibita (nema um sé að ræða hittinga eða ef ég er erlendis)
- Labba allt í Keflavík eða Njarðvík nema ég stoppi á leiðinni út úr bænum

Janúar markmiðin voru eftirfarandi:
- Byrja á hlaupaprógraminu

Á hverjum degi:
- Borða 500 kkal minna en ég brenni 
 - Labba minnst 8 km á dag (er með fitbit úr)
- 500 magaæfingar á dag
- 100 hnébeygjur á dag
- 30 armbeygjur á dag

Ef ég er að þjálfa (4-5x í viku):
- 1 kaðall
- 10 tær í efstu
- 5 terrur (uppáhringir)

Ef ég fer í ræktina (2-3x í viku):
- 3 x 10 upphýfingar
- 3 x 10 dips
- 10 mín tröppur
- 5 mín róður

Ég ætla ekki að gerast það gróf að segja að ég hafi staðist þetta 100%, það hafa örfáir dagar klúðrast en ég hef nokkurn veginn staðist þetta sem er alveg ágætt út af fyrir sig. Ég er þó að glíma við þá staðreynd í dag að vöðvar eru þyngri en fita ... sem þýðir að vigtin er ekki besti vinur minn þessa dagana :) 

Þar sem orkan færðist loksins yfir mig núna síðastu vikuna í janúar þá uppfærði ég loksins 101 listann minn :) Mér til mikillrar hamingju var ég búin að ná nokkrum markmiðum á listanum.



Sló þrjár flugur í einu höggi með Bambaloo Icelandic Design og ButlerME. Ég hef miklar vonir til beggja verkefnanna en mér þykir þó einstaklega skemmtilegt að vinna ButlerME bestu vinkonu minni og sálufélaga henni Sigrúnu frænku. Það er gjörsamlega ómetanlegt.


Ein af mínum bestu vinkonum, hún Bára, er snillingur út af fyrir sig og hefur verið einstaklega góð í að halda mér gangandi þegar kemur að ofangreindum verkefnum. Hún ásamt öðrum kemur mér til að hugsa út fyrir rammann og að fara út fyrir þægindarammann minn. Hún er einstaklega úrræðagóð og ekki nóg með það þá er hún ævintýrasjúk :) Hún kom með þá hugmynd um að fara til Las Vegas yfir afmælið okkar, en það vill svo til að við eigum báðar afmæli 30. nóvember. Ég ákvað að taka þessari hugmynd fagnandi og sé sko ekki eftir því. Ferðin var einstaklega skemmtileg og mæli ég með því að allir prófi Las Vegas einn daginn.































Last but not least ... alltaf gott að klára að borga hluti upp, en þetta lán var einstakt út af fyrir sig og því var mikill léttir þegar ég loks kláraði það :) 


Eftir að hafa strokað mörg atriði út af þessum lista gerir það að verkum að ég trúi alltaf meira og meira á markmiðasetningu, að skrifa niður á blað og að hafa drauma sína sýnilega fyrir framan þig á veggnum þínum. Just do it!

Ég ætla nú ekki að hafa það lengra að þessu sinni, þó ég hafi lagst í dvala þá er ég yfirleitt nokkuð öflug á Snapchat og á það til að setja inn matargerð til að mynda. Þeir sem vilja fylgjast með geta addað mér: evahrund83.

Klára þetta með Quote-i dagsins:

No comments: