Tuesday, October 13, 2015

Pick a color - Unplug every day!

Ég gleymdi alltaf að setja þetta inn en ég fékk eftirfarandi verkefni í bókinni "Unplug every day".


Mér fannst þetta frekar fyndið verkefni en ákvað að velja fjólubláann og ég verð að viðurkenna að svona verkefni er mjög hollt fyrir manneskju eins og mig. Ég get verið það utan við mig að ég er ekkert að taka eftir neinu í nærumhverfinu og það er mjög sjaldgæt að ég geti munað t.d. í hvernig fötum fólk var og afar sjaldan tek ég eftir því að einhver er búin að klippa hárið á sér eða eitthvað slíkt. Þannig að ég hef mjög gott af verkefnum sem þessum, þar sem að ég þarf að vera skoða umhverfið mitt. Hér er afraksturinn.


 
 
 
 
 



Friday, October 9, 2015

Orkumikið banana, bláberja og chia smoothie

Ég er dottin í smoothie/boozt stuð!

Þetta er sá nýjasti :)



Hráefni
100 gr. frosin bláber
100 ml bláberjasafi frá Berry Company
1 banani
20 gr. chia fræ
200 ml vatn
4 klakar


Enn og aftur, blanda saman í blandara og hella í glas, flóknara gæti það ekki verið.

**Þessi telur tæpar 300 kaloríur, þar af 65 gr. kolvetni, 7 gr. prótein og 7 gr. fitu.

Nammi boozt

Ég kom heim um daginn, dauðþreytt og "kreifaði" í eitthvað sætt en samt ekki alveg of sætt en úr varð þessi nammi boozt, rosalega góður, mæli með honum! :) 



Hráefni
1 x banani
1 x lúka af frosnum jarðaberjum
1 msk súkkulaðispænur (og aðeins meira til skreytingar)
200 ml vatn
Nokkrir klakar
Þeyttur rjómi

Aðferð
Í blandara með allt nema rjómann. Setjið rjómann svo á þegar búið er að hella í glas og smá spænir yfir.

Thursday, October 8, 2015

I'm alive!

Jæja er ekki komin tími til að skrifa eitthvað hér inn :)

Það er ekki að ástæðulausu að ekkert hefur heyrst frá mér í einhvern tíma, ég búin að vera í ýmsum verkefnum (líkt og rétt í þessu tók ég næstum puttann af mér við að hleypa hundunum út - klaufaskapurinn hverfur seint - vel gert Eva, vel gert!), sum splunkuný og önnur gömul líkt og...


Fyrir 2 árum hóf ég mastersnám í stjórnun og stefnumótun með vinnu en þurfti svo að frysta það, sökum mikilla anna. Ég ákvað því að taka upp þráðinn og klára þessa gráðu loksins.


Einnig gamalt verkefni, nema að ég er ekki bara að þjálfa fatlaða í dag, ég er einnig byrjuð að þjálfa 3 strákahópa, ágætt fyrir karladómarann að fara í þetta verkefni :) 


Eftir Special Olympics í LA fannst mér komin tími á að fleiri félög en Gerpla myndu bjóða upp á fimleika fyrir fatlaða þannig að ég talaði við Fimleikadeild Keflavíkur sem tók svona líka vel í hugmyndina og er í dag komið í samstarf við Nes. Þannnig að ég er byrjuð að þjálfa í Keflavík líka :)


Eftir ljósanótt fylltist ég innblæstri og fann þessa fínu föndurbúð. Í kjölfarið fór ég að hekla í kringum kúlur og að búa til hálsfestar. Það skemmtilega við þetta var að ég var spurð hvort ég væri að selja þær og því ákvað ég bara að fara á fullt og er komin í sölu á hálsfestum og armböndum. Þetta verkefni er svolítið búið að eiga allan hugann minn þegar ég er ekki í ofangreindum verkefnum. Endilega kíkið á Facebook síðuna:




Engu að síður átti þetta blogg líka að eiga hluta af mér og hef ég algjörlega vanrækt það ásamt mörgu öðru, en nú er kominn tími á breytingar.

Þar til seinna :)