Thursday, February 4, 2016

Nýr mánuður - ný markmið :)

Ég fagna því alltaf þegar nýr mánuður er genginn í garð því það þýðir yfirleitt nýjar áskoranir ... eða enn eitt tækifærið til að standa sig 100% í þeim áskorunum sem maður hefur sett sér :) Ég verð þó að viðurkenna að ég hef sjaldan staðið jafnvel við þau markmið sem ég hef sett mér eins og í janúar þó ég hafi endrum og sinnum "svindlað".

Ég hef ákveðið að fara eftir skrefinum 12 í The How of Happiness, en ég fjallaði einmitt um þessa bók hér. En samkvæmt bókinni þarftu að stíga 12 skref í átt að hamingju og ætla ég að byrja núna á skrefi nr. 5 sem er "committing to your goals".

Skrefin 12:

1 – expressing gratitude, cultivating optimism and avoiting overthinking and social comparison
2 – investing in social connections, practising acts of kindness, nurturing social relationships
3 – managing stress, hardship and trauma, develop strategies for coping, learning to forgive
 4 – living in the present, increase flow, savoring life´s joy´s
5 – committing to your goals
6 – taking care of your body and your soul, seek meaning and purpose, meditation
7 – find positive meaning 
8 – savor goodness
9 – follow your passion
10 – dream about your future
11 – apply your strenghts 
12 – connect with nature

Febrúar markmiðin mín voru eftirfarandi:

6 x í viku
Minnst 8,5 km
35 armbeygjur
100 hnébeygjur
600 magaæfingar
30 sek handstaða

3 x í viku
Hlaupaæfing

2 x í viku
3 x 12 upphýfingar og dýfur
750 tröppur

Vikumarkmið
5 kaðlar í sokkum
25 terrur

Persónuleg markmið
1 dekurkvöld í viku
Ekkert djamm :)
Eyða minna en áætlanir gera ráð fyrir


Ég verð nú að viðurkenna að veðrið er EKKI að hjálpa til við markmiðin en það er bara hindrun sem maður þarf að yfirstíga.

Í tilefni þessa skelli ég eftirfarandi quote-i inn, þar sem að ég ELSKA góð quote :)