Hráefni
1,2 kg. súpukjöt (voru ca. 7 bitar)
3 lítrar vatn
2 rófur
1 poki gulrætur
1 laukur
1/2 bolli hrísgrjón
2 kínverskir hvítlaukar
Rúmlega hálfur poki súpujurtir
1,5 nautakraftur (sem myndi jafngilda 1,5 lítra af soði)
Salt (ég notaði gróft himalaya)
Aðferð
1. Settu vatnið í pott og á hæsta hita þar til það sýður.
2. Bættu ca. teskeið af salti út í vatnið og bættu kjötinu við, lækkaðu hitann og leyfðu kjötinu að sjóða í minnsta kosti 45 mínútur (því lengur því betra).
3. Skerðu laukinn í helminga og svo sneiðar og bættu út í pottinn.
4. Saxaðu hvítlaukinn niður og bættu út í pottinn.
5. Skerðu gulræturnar og rófurnar niður í munnbita.
6. Taktu kjötið upp úr pottinum og skafðu í burt alla hvíta froðu ef hún er til staðar í pottinum. Bættu núna gulrótunum, rófunum og nautakraftinum út í.
7. Skerðu kjötið niður í munnbita og hentu beinunum. Bættu kjötinu við ásamt súpujurtum og hrísgrjónum.
8. Saltaðu eftir smekk. Mér finnst best að sjóða þar til að gulræturnar og rófurnar eru orðnar vel mjúkar.
Súpan er svo bara klár, en hún er best eftir því sem hún fær að malla lengur og enn betri daginn eftir :)
